Karlmaður á fimmtugsaldri er alvarlega slasaður eftir að hafa orðið fyrir stunguárás í Gautaborg í Svíþjóð í dag.
Enginn hefur verið handtekinn vegna árásarinnar en lögreglan flokkar atvikið sem tilraun til morðs.
Sænska ríkisútvarpið greinir frá.
Í gær lést maður á þrítugsaldri eftir að hafa orðið fyrir stunguárás í borginni.
Þá var 39 ára gamall maður skotinn til bana í Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar, í gærkvöldi.