Lofa öllu fögru en halda áfram að ógna og myrða Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2021 09:02 Stuðningsmenn Talibana fagna yfirtöku þeirra á landamærabænum Spin Boldaka fyrr í júlí. AP/Tariq Achkzai Talibanar munu ekki semja um frið fyrr en Ashraf Ghani, núverandi forseti, fer frá völdum og ný ríkisstjórn verði mynduð. Þeir segjast ekki vilja stjórna einir þar sem engum hafi tekist það til lengri tíma.
Þetta kemur fram í viðtali AP fréttaveitunnar við Suhail Shaheen, talsmann Talibana, sem er einnig meðlimur í samninganefnd þeirra. Shaheen sagði að Talibanar myndu ekki leggja niður vopn fyrr en Ghani væri kominn frá völdum og búið væri að mynda ríkisstjórn sem væri þóknanleg öllum fylkingum landsins sundraða. Hann kallaði Ghani stríðsmangara og sakaði hann um spillingu og að vilja verða einvaldur. Talibanar eru ekki þeir einu sem hafa sakað Ghani um spillingu og einræðistilburði og hefur vera hans í embætti verið sögð koma niður á samheldni ráðandi fylkinga í Afganistan. Suhail Shaheen, talsmaður Talibana.AP/Alexander Zemlianichenko Shaheen hélt því fram í viðtalinu að undir þessari nýju ríkisstjórn myndu konur fá að sækja vinnu, stunda nám og taka þátt í stjórnmálum. Þær þyrftu hins vegar að klæðast hijab-slæðu. Hann sagði einnig að konur myndu ekki þurfa fylgd karlkyns fjölskyldumeðlims þegar þær færu út. Orð ekki í samræmi við fregnir Þessi orð eru ekki í samræmi við fregnir sem berast frá yfirráðasvæðum Talibana í Afganistan. Þar eru Talibanar sagðir hafa sett konum umfangsmiklar hömlur og jafnvel brennt niður skóla. Fyrir skömmu voru í dreifingu myndbönd af vígamönnum Talibana skjóta hóp hermanna til bana, eftir að þeir gáfust upp. Samhliða sókn þeirra í Afganistan hafa Talibanar sömuleiðis markvisst unnið að því að myrða fólk sem hefur starfað með hersveitum Atlantshafsbandalagsins á undanförnum tuttugu árum. CNN sagði sögu Sohails Pardis en hann túlkaði fyrir bandaríska hermenn í rúmt ár. Í maí var hann á ferðalagi frá heimili sínu í Kabúl til nærliggjandi héraðs að sækja systur sína. Á ferð sinni kom hann þó að varðstöð Talibana þar sem hann var dreginn út úr bílnum og afhöfðaður. Hann hafði áður sagt vinum sínum frá því að honum hefði borist morðhótanir. Segjast fá morðhótanir Leiðtogar Talibana gáfu frá sér yfirlýsingu í júní þar sem þeir sögðu að Afganar sem hefðu starfað með erlendum herjum væru ekki í hættu. Hins vegar hafa fjölmargir þeirra sagt blaðamönnum CNN að líf þeirra séu í hættu og árásir hafi verið gerðar á þá. Um það bil átján þúsund Afganar sem störfuðu með sveitum NATO hafa sótt um leyfi til að setjast að í Bandaríkjunum. Ríkisstjórn Joes Biden hefur gefið út að seinna í þessum mánuði verði byrjað að flytja þá sem þegar hafa fengið samþykki frá Afganistan og til Bandaríkjanna eða annarra ríkja. Talibanar hafa einnig myrt fjölmarga blaðamenn og mannréttindasinna í Afganistan á undanförnu ári. Þar að auki hafa Talibanar markvisst unnið að því að myrða þjálfaða afganska flugmenn. Vilja ekki borgarastyrjöld Talibanar hafa náð tökum á stórum hlutum Afganistans og stjórna um það bil helmingi höfuðborga héraða landsins. Hröð sókn Talibana gegn stjórnarher landsins hefur leitt til þess að stríðsherrar landsins eru byrjaðir að mynda eigin sveitir vopnaðra manna á nýjan leik. Margir óttast nýja borgarastyrjöld, milli þessara sömu stríðsherra, eins og þá sem leiddi til þess að Talibanar tóku völd í Afganistan á tíunda áratug síðustu aldar. Shaheen segir Talibana ekki vilja nýja borgarastyrjöld. Það vildi enginn.
Afganistan Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Sjá meira