135 smit innanlands

mbl.is/Auðun

135 greind­ust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær, þar af voru 72 í sóttkví við greiningu. Þetta kem­ur fram á covid.is þar sem enn frem­ur kem­ur fram að alls hafi 141 smit greinst í gær, þar af sex á landa­mær­un­um.

76 þeirra sem greindust voru óbólusettir, 55 fullbólusettir og bólusetning var hafin hjá hjá fjórum.

19 eru á sjúkra­húsi, þar af þrír á gjör­gæslu.

Tek­in voru 3.426 sýni, þar af 1.733 ein­kenna­sýni. 1.728 eru nú í ein­angr­un vegna Covid-19 og 2.074 í sótt­kví.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert