Hæstiréttur Íslands hefur dæmt Leikfélag Reykjavíkur til að greiða leikaranum Atla Rafni Sigurðarsyni 1,5 milljónir króna í miskabætur ásamt þremur milljónum króna í málskostnað.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram að Leikfélagi Íslands hafi almennt séð verið heimilt að segja upp samningi við Atla Rafn í samræmi við þær meginreglur sem gilda á almennum vinnumarkaði.
Aftur á móti hafi félagið vikið í grundvallaratriðum frá þeim skráðu hátternisreglum sem það hefði átt að fara eftir við mat á framkomnum ásökunum á hendur Atla Rafni þótt uppsögnin væri beint tengd þeim.
Síðastliðið vor var greint frá því að Atli Rafn fengi að áfrýja til Hæstaréttar máli sínu gegn Leikfélagi Reykjavíkur vegna uppsagnar hans frá Borgarleikhúsinu í desember árið 2017. Hins vegar fékk hann ekki að áfrýja sambærilegu máli gegn Kristínu Eysteinsdóttur leikhússtjóra. Bæði leikfélagið og Kristín voru sýknuð af kröfum hans í Landsrétti. Í héraðsdómi voru honum aftur á móti dæmdar 5,5 milljónir króna í bætur.
Ágreiningur málsins laut að því hvort rétt hefði verið staðið að uppsögninni og ef svo væri ekki, hvort Atli Rafn ætti rétt til bóta fyrir fjártjón og miska.