Waldorfskólinn hlaut foreldraverðlaun

Í ár hlaut Waldorfskólinn í Lækjarbotnum Foreldraverðlaun Heimilis og skóla …
Í ár hlaut Waldorfskólinn í Lækjarbotnum Foreldraverðlaun Heimilis og skóla fyrir verkefnið ,,Vinnudagar Lækjarbotna og gróðursetning plantna á skólasetningu“. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent í 27. sinn í Safnahúsinu við Hverfisgötu í gær. Waldorfskólinn í Lækjarbotnum hlaut verðlaunin í ár fyrir verkefnið „Vinnudagar Lækjarbotna og gróðursetning plantna á skólasetningu“.

Fram fór hátíðleg athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu og mættu þau Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Eliza Reid forsetafrú til að ávarpa samkomuna og afhenda verðlaunin.

Við sama tækifæri var Hlín Magnúsdóttir útnefnd Dugnaðarforkur Heimilis og skóla árið 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert