„Ég hvet engan til að fara í slík partý“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 12. janúar 2022 13:23 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir . Vísir/Egill Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, ræður fólki eindregið frá því að hittast til þess að smitast viljandi af ómíkrónafbrigði kórónuveirunnar.
Þetta var á meðal þess sem fram kom á upplýsingafundi Almannavarna í dag. Þar var Þórólfur spurður að því, í ljósi þess að ómíkronafbrigðið virðist vera vægara en önnur afbrigði, hvað hann myndi segja við þau sem hugsa með sér að best væri að næla í sér afbrigðið til að vera „búin“, ef svo mætti að orði komast. Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, spurði þessarar spurningar og vísaði í svokölluð „hettusóttarpartý“, þegar foreldar létu börn sín visvitandi smitast af tiltölulega vægum sjúkdómum á borð við hettusótt og hlaupabólu til að öðlast ónæmi. „Það er mjög óráðlegt. Það stuðlar að aukinni útbreiðslu í samfélaginu og veiran hittir þá fyrir þá sem munu veikjast alvarlega og leggjast inn,“ svaraði Þórólfur. Þetta væri ekki góð hugmynd þegar allt kapp væri lagt á að draga úr þeim fjölda sem greinist með Covid-19 á hverjum degi. „Þetta hangir bara saman, útbreiðslan og hlutfallið sem þarf að leggjast inn. Það væri mjög óráðlegt á sama tíma og við erum að reyna að ná kúrfunni niður,“ sagði Þórólfur. Það væri ekki ráðlegt að halda slík „partý“ til að næla sér í ómíkrónafbrigði Covid-19. „Ég hvet engan til að fara í slík partý. Það gæti endað illa.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Leggur mögulega til hertar aðgerðir fyrir helgi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir allt stefna í það að hann þurfi að leggja til að að sóttvarnarreglur verði hertar innanlands til að draga úr daglegum fjölda þeirra sem greinist með Covid-19. Hann segist jafn vel reikna með að skila tillögum um hertar aðgerðir fyrir helgi. 12. janúar 2022 11:37 Barn á fyrsta ári með Covid-19 á Landspítala Eitt barn á fyrsta ári liggur nú inni á Landspítala með Covid-19 og um 60 eru í eftirliti á Barnaspítala vegna sjúkdómsins. Daglega koma um tvö til fimm börn þangað til skoðunar. 12. janúar 2022 11:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Innlent Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Innlent Fleiri fréttir Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Sjá meira
Leggur mögulega til hertar aðgerðir fyrir helgi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir allt stefna í það að hann þurfi að leggja til að að sóttvarnarreglur verði hertar innanlands til að draga úr daglegum fjölda þeirra sem greinist með Covid-19. Hann segist jafn vel reikna með að skila tillögum um hertar aðgerðir fyrir helgi. 12. janúar 2022 11:37
Barn á fyrsta ári með Covid-19 á Landspítala Eitt barn á fyrsta ári liggur nú inni á Landspítala með Covid-19 og um 60 eru í eftirliti á Barnaspítala vegna sjúkdómsins. Daglega koma um tvö til fimm börn þangað til skoðunar. 12. janúar 2022 11:29