Sérsveitin þvingaði bíl út af vegi undir Esju Jakob Bjarnar skrifar 23. júlí 2021 14:17 Mikið gengur á undir Esjunni núna og hafa umferðartafir skapast á Vesturlandsvegi en lögreglu tókst eftir eftirför að stöðva bíl þar nú rétt í þessu. aðsend Lögreglan veitti mönnum eftirför allt frá Norðlingaholti og upp í Kjalarnes síðdegis í dag. Tveir voru handteknir vegna málsins.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu á fjórða tímanum að tilkynnt hafi verið um líkamsárás í Árbæ. Lögregla hafi farið á vettvang og þá hafi upphafist eftirför í gegnum Grafarvog, áleiðis upp í Mosfellsbæ og hún loks endað á Kjalarnesi. Eins og áður segir voru tveir handteknir og vistaðir í þágu rannsóknar. „Brotaflokkar eru m.a. líkamsárás, akstur undir áhrifum áfengis/fíkniefna, umferðarlagabrot ofl. Rannsókn málsins á frumstigi og í raun ekkert frekar til frásagnar að svö stöddu,“ segir lögregla í tilkynningu. Upphaflega fréttin: Mikið tilstand er á Vesturlandsvegi þessa stundina en svo virðist sem sérsveitin hafi þvingað bíl út af veginum á Kjalarnesi. Þetta hefur ekki farið fram hjá vegfarendum sem hafa komið ábendingum á framfæri við fréttastofu. Vísi tókst að ná tali af Elínu Agnesi Kristínardóttur aðstoðaryfirlögregluþjóni nú rétt í þessu og hún staðfesti að um hefði verið að ræða eftirför. „Við erum rétt að ná utan um þetta. Þetta var bara að gerast í þessum töluðu orðum og í framhaldinu tekur við rannsókn. Þannig að við getum ekki tjáð okkur meira í bili.“ Að sögn Elínar hafði lögreglan veitt manni eða mönnum eftirför allt frá Norðlingaholtinu allt upp á Kjalarnesi þar sem tókst að stöðva bílinn. Sjónarvottur greinir frá því að hann hafi séð þrjá lögreglubíla bruna yfir Gullinbrú fyrir um hálftíma. Og annar greinir frá því að tekist hafi að stöðva hvítan bíl úti í vegarkanti á Kjalarnesi, við afleggjarann frá Ármóti á leið úr borginni. Hafa hlotist verulegar umferðartafir af þessu. Fréttin hefur verið uppfærð. Lögreglu tókst að neyða ökumanninn út af veginum eftir eltingarleik.vísir/hjalti
Lögreglumál Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Þyrlan enn ekki fundin og leit úr lofti stöðvuð Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Sjá meira