Fótbolti

Þor­steinn eftir stór­sigurinn á Tékk­landi: „Við erum í bíl­stjóra­sætinu og ráðum því sjálf hvernig fram­haldið verður“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þorsteinn á hliðarlínunni í blíðskaparveðrinu á Laugardalsvelli í kvöld.
Þorsteinn á hliðarlínunni í blíðskaparveðrinu á Laugardalsvelli í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

„Úrslitin eru náttúrulega eitthvað sem maður hefði alltaf óskað sér. Þetta var hörkuleikur, ef ég segi sanngjarnt frá var þetta kannski ekki 4-0 leikur,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska landsliðsins, eftir stórsigur Íslands á Tékklandi.

„Við kláruðum færin og nýttum þau vel, það var bara munurinn á liðunum í dag,“ bætti þjálfarinn við.

Varðandi fyrri hálfleikinn sem var mjög opinn

„Bara sáttur sko, þær voru erfiðar og halda boltanum, eru þolinmóðar og líður vel með boltann. Við þurftum að vera svolítið þolinmóð með okkar eltingarleik sem við lentum í á köflum“

„Ég var bara sáttur með að við vorum að nýta færin okkar. Vorum ekki að fá mikið af færum í fyrri hálfleik og nýttum eitt gott færi. í seinni hálfleik nýttum við í raun fyrstu þrjú færin okkar, man ekki eftir neinu öðru. Agla María (Albertsdóttir) skaut í slána, held það hafi verið besta færið sem við nýttum ekki.“

„Það er mikilvægt í því að við erum í bílstjórasætinu og ráðum því sjálf hvernig framhaldið verður. Við getum raunverulega treyst á sjálf okkur og það er það sem skiptir gríðarlega miklu máli, þurfum ekki að treysta á neina aðra. Við getum horft á sjálfa okkur og það skiptir gríðarlegu máli í þessari baráttu.“

„Heilt yfir var þetta fín frammistaða og bara mjög góð. Maður fer ekki að kvarta yfir 4-0 sigri á móti Tékklandi. Fyrsta skipti sem Ísland vinnur Tékkland og ekki langt síðan liðin gerðu 2-2 jafntefli svo við erum gríðarlega sátt. Heilt yfir bara góð frammistaða og jöfn.“

„Ég ætla ekki ljúga, það var ekki beint af æfingasvæðinu en við ræddum alveg fyrir leik ákveðna hluti og í hálfleik líka: Að nýta tækifærin úr hornspyrnum. Að þora að búa til eitthvað úti áður, hann þyrfti ekki að fara beint inn í,“ sagði Þorsteinn um mark Dagnýjar Brynjarsdóttur.

Klippa: Viðtal við Þorstein Halldórsson eftir sigur á Tékklandi

Varðandi breytingar á byrjunarliðinu

„Mjög ánægður. Guðrún (Arnardóttir) var flott og Karólína Lea (Vilhjálmsdóttir) var flott. Ég er bara sáttur við þær. Við vorum að leita eftir fjölbreytni í sóknarleiknum með að fá Karólínu Leu inn, öðruvísi leikmaður en allir hinir þrír miðjumennirnir. Það er það sem við vorum að leita eftir og svo vorum við að leitast eftir að Guðrún kæmi inn með blússandi sjálfstraust eftir að hafa verið meistari í Svíþjóð og hún sýndi og sannaði það í dag,“ sagði Þorsteinn að endingu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×