Grease-leikkona lést á heimili sínu

Susan Buckner.
Susan Buckner. Samsett mynd

Leikkonan Susan Buckner, sem fór með hlutverk klappstýrunnar Patty Simcox í dans- og söngvamyndinni Grease, er látin 71 árs að aldri. 

Í tilkynningu frá fjölskyldu hennar segir að hún hafi látist friðsamlega á heimili sínu þann 2. maí síðastliðinn, umkringd fjölskyldu sinni og ástvinum. Ekki hefur verið greint frá dánarorsök leikkonunnar. 

Buckner var fjölhæf listakona. Hún starfaði meðal annars sem leikkona, dansari og söngkona á ferli sínum. Buckner kom fram í sjónvarpsþáttum á borð við The Mac Davis Show, Sonny and Cher og The Brady Bunch Variety Hour. Buckner var krýnd fegurðardrottning Washington-fylkis árið 1971, þá 18 ára gömul. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg