Viðskipti innlent

Snorri og Óskar kaupa Val­höll

Bjarki Sigurðsson skrifar
Óskar H. Bjarnasen og Snorri Björn Sturluson eru nýir eigendur Valhallar.
Óskar H. Bjarnasen og Snorri Björn Sturluson eru nýir eigendur Valhallar.

Fasteignasalarnir Snorri Björn Sturluson og Óskar H. Bjarnasen hafa tekið við rekstri Valhallar fasteignasölu af stofnanda hennar, Ingólfi Geir Gissurarsyni. Báðir hafa þeir ekki starfað hjá stofunni áður.  

Ingólfur mun halda áfram að starfa á Valhöll með nýjum eigendum. Hann stofnaði stofuna árið 1995 og er aðalútibú hennar í Síðumúla. Þó rekur fasteignasalan einnig útibú á Ólafsvík og Höfn í Hornafirði. 

Snorri hefur starfað við sölu fasteigna síðan árið 2005 en hann kemur til Valhallar frá Domusnova. Þar hefur hann starfað undanfarin sjö ár. Snorri útskrifaðist með BA gráðu í lögfræði árið 2013 frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu árið 2015. Árið 2017 öðlaðist Snorri málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum og hefur hann fengist við ýmis verkefni sem lögmaður með áherslu á fasteignaviðskipti.

Óskar er löggiltur fasteignasali og hefur verið lögmaður frá árinu 2015. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og meistaragráðu (LL.M) í evrópurétti frá Háskólanum í Lundi árið 2013. Einnig hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Frá árinu 2014 hefur Óskar starfað við fasteignasölu og ráðgjöf tengdri fasteignarfjármögnun fyrirtækja. Þar áður starfaði hann í fjögur ár við sölu og viðskiptaþróun hjá alþjóðlegu fyrirtæki í Svíþjóð. Óskar kemur til Valhallar frá Miklaborg fasteignasölu þar sem hann starfaði fá árinu 2018.

„Við erum mjög spenntir að taka við rekstri Valhallar fasteignasölu sem er með þekktari vörumerkjum landsins á fasteignamarkaði. Um er að ræða rótgróna fasteignasölu sem hefur verið vel rekin af Ingólfi í 28 ár. Við tökum við góðu búi og ætlum að byggja ofan á það með starfsfólki Valhallar ásamt gömlum og nýjum viðskiptavinum,“ er haft eftir Snorra í tilkynningu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×