Margfalt fleiri nota Oxycontin nú en fyrir tíu árum Sunna Valgerðardóttir skrifar 24. janúar 2022 18:45 Vísir/Arnar Um 3.500 manns eru nú skráðir neytendur ópíóíðans Oxycontin. Þeir voru um 500 fyrir áratug. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs.
Embætti Landlæknis tekur saman fjölda lyfjatengdra andláta á hálfs árs fresti. Fyrstu sex mánuði síðasta árs voru skráð hér 24 andlát sem rekja má til ofskömmtunar lyfja. Þau hafa aldrei verið svo mörg á sex mánaða tímabili. Síðan 2018, eftir að reglur um lyfjaávísanir voru hertar til muna, hafa að minnsta kosti 130 manns dáið beinlínis úr of stórum lyfjaskammti á Íslandi. „Það eru miklu fleiri sem deyja þó að það sé ekki skráð svoleiðis. Og síðan þurfum við að hafa í huga allan þann fjölda sem lætur ekki lífið, hlýtur jafnvel varanlegan heilaskaða af,” segir Kristín Davíðsdóttir, verkefnisstýra Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins. „Ég held að Oxycontin sé algengast. Enda er mikið um það á götunni og það er flutt inn frá Spáni.” Sjöföldun á tíu árum Þeim hefur fjölgað mikið sem fá ávísað oxycontin, sem er líklega alræmdasti ópíóíðinn, þrátt fyrir aukna meðvitund meðal lækna. Samkvæmt upplýsingum Kompás fengu um 500 manns ávísað oxy árið 2011. Þeir voru 3500 í fyrra. Þetta er sjöföldun á tíu ára tímabili. „Við erum að sjá vöxt í nýjum ópíóíðafaraldri allra síðustu ár,” segir Sigurður Örn Hektorsson, geðlæknir og fyrrverandi yfirlæknir fíknigeðdeildar Landspítalans. „Þetta getur hreinlega endað með öndunarstoppi og dauða. Og það er það sem við höfum verið að sjá á Íslandi í vaxandi mæli núna á undanförnum árum. Það hefur verið aukning í lyfjatengdum dauðsföllum og þar spila ópíóíðarnir eða morfínskyldu lyfin lang stærsta hlutverkið.” Lífið umturnaðist Jósep Freyr Pétursson Riba notaði ópíóíða í æð í fjögur ár. Líf hans umturnaðist nánast um leið og hann prófaði fyrstu sprautuna. „Morfínefni eru þannig að, sérstaklega náttúrulega í sprautuneyslu, þá ertu strax kominn í stöðuga lífshættu. Nokkrum sinnum á dag,” segir Jósep. Fjallað er ítarlega um hinn nýja ópíóíðafaraldur í Kompás á Stöð 2, strax að loknum fréttum, mánudagskvöldið 24. janúar 2022. Þátturinn verður birtur í heild sinni á Vísi á þriðjudagsmorgni.
Kompás Heilbrigðismál Fíkn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Innlent Fleiri fréttir Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Sjá meira