Maður grunaður um að hafa orðið konu sinni að bana í Sandgerði látinn laus í ljósi nýrra gagna Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 15. október 2020 12:38 Úrskurðurinn féll í Landsrétti á föstudaginn var. Vísir/Hanna Andrésdóttir
Karlmaður á sextugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa orðið eiginkonu sinni að bana í Sandgerði í lok mars hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi í ljósi nýrra gagna í málinu. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem úrskurðaði í málinu á föstudaginn var. Þar var felldur úr gildi fyrri úrskurður héraðsdóms þess efnis að maðurinn skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi. Maðurinn er grunaður um að hafa banað eiginkonu sinni á heimili þeirra með því að hafa þrengt að hálsi hennar með þeim afleiðingum að hún lést af völdum köfnunar. Í kröfu sóknaraðila til héraðsdóms segir að réttarkrufning hafi leitt í ljós að banamein hennar hafi verið kyrking og að ekkert liggi fyrir um að einhver annar gæti átt hlut að máli. Ný matsgerð breytir málinu Í nýrri matsgerð dómkvaddra matsmanna sem lögð var fyrir þann 30. september síðastliðinn segir hinsvegar að mögulegt sé að konan hafi látist af völdum „blöndunareitrunar af klórdíasepoxíði, lífefna þess og áfengis,“ eins og það er orðað. Jafnframt segir að ekki sé unnt að staðfesta að kraftbeiting gegn hálsi hafi átt sér stað rétt fyrir andlátið, heldur gæti hún hafa átt sér stað allt að þremur dögum fyrir það. Landsréttardómarar komust því að þeirri niðurstöðu að í ljósi þessara nýju gagna verði ekki talið að skilyrði til gæsluvarðhalds séu lengur fyrir hendi. Varakrafa um að maðurinn skyldi sæta farbanni var heldur ekki tekin til greina.
Manndráp í Sandgerði Dómsmál Suðurnesjabær Tengdar fréttir Talinn hafa þrengt að hálsi eiginkonu sinnar sem lést Karlmaður á sextugsaldri, sem hefur verið ákærður fyrir manndráp með því að hafa banað eiginkonu sinni á heimili þeirra í Sandgerði í lok mars, er talinn hafa þrengt svo að hálsi hennar að hún lést af völdum köfnunar. 18. september 2020 17:11 Hinn grunaði í Sandgerði áfram í gæsluvarðhaldi Karlmaður á sextugsaldri, sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana á heimili þeirra í Sandgerði í lok mars, var á miðvikudag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 16. júní. 22. maí 2020 11:00 Krefjast áframhaldandi varðhalds yfir hinum grunaða Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ætlar í dag að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir karlmanni á sextugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana í Sandgerði laugardagskvöldið 28. mars. 8. apríl 2020 11:33 Handtekinn fjórum dögum eftir að hann tilkynnti andlát konu sinnar Sambýlismaður konu sem lést í Sandgerði þann 28. mars síðastliðinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. apríl. Hann var ekki handtekinn fyrr en fjórum dögum eftir að konan lést. 6. apríl 2020 11:48 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira
Talinn hafa þrengt að hálsi eiginkonu sinnar sem lést Karlmaður á sextugsaldri, sem hefur verið ákærður fyrir manndráp með því að hafa banað eiginkonu sinni á heimili þeirra í Sandgerði í lok mars, er talinn hafa þrengt svo að hálsi hennar að hún lést af völdum köfnunar. 18. september 2020 17:11
Hinn grunaði í Sandgerði áfram í gæsluvarðhaldi Karlmaður á sextugsaldri, sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana á heimili þeirra í Sandgerði í lok mars, var á miðvikudag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 16. júní. 22. maí 2020 11:00
Krefjast áframhaldandi varðhalds yfir hinum grunaða Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ætlar í dag að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir karlmanni á sextugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana í Sandgerði laugardagskvöldið 28. mars. 8. apríl 2020 11:33
Handtekinn fjórum dögum eftir að hann tilkynnti andlát konu sinnar Sambýlismaður konu sem lést í Sandgerði þann 28. mars síðastliðinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. apríl. Hann var ekki handtekinn fyrr en fjórum dögum eftir að konan lést. 6. apríl 2020 11:48