Allir leikir í þessari deild eru jafn mikilvægir fyrir okkur Dagur Lárusson skrifar 3. desember 2021 23:05 Finnur Freyr, þjálfari Vals. Vísir/Bára Dröfn Valur stöðvaði sigurgöngu Íslandsmeistara Þórs Þorlákshafnar í Subway-deild karla í kvöld. Fyrir leikinn höfðu Þórsarar unnið sex leiki í röð en Valur sagði hingað og ekki lengað, 11 stiga sigur og Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals var eðlilega sáttur í lok leiks. „Fyrst og fremst bara gríðarlega ánægður með sigurinn, alltaf dýrmætt í þessari deild að ná sigrum og sérstaklega hérna á heimavelli,“ byrjaði Finnur Freyr að segja í viðtali eftir leik. Finnur var ágætlega sáttur með spilamennsku síns liðs en hann vildi meina að tæki eftir því að það væri tvær vikur frá síðasta leik. „Mér fannst spilamennskan svona bera þess merki að það væru tvær vikur frá síðasta leik hjá okkur í byrjun allaveganna. Mér fannst vörnin herðast vel, sérstaklega í seinni hálfleiknum. Um leið og við náðum tökum á varnarleiknum þá tókum við svolítið pressuna af sóknarleiknum hjá okkur,“ hélt Finnur Freyr áfram. Þór var með forystuna allan annan leikhluta og megnið af þriðja leikhluta en í þeim fjórða tóku Valsmenn við sér. „Þórsarar eru auðvitað bara frábært lið og Lalli að sýna að þetta í fyrra hafi ekki verið nein tilviljun. Þeir voru að setja niður fullt af svokölluðum sjálfstraust körfum en í fjórða leikhluta fórum við að herðast í vörninni og fórum að neyða þá í erfið skot og það skilaði sér vel.“ Aðspurður hvort að sigurinn í kvöld væri mikilvægari en hver annar sigur þar sem þetta væri sigur gegn Íslandsmeisturunum sagði Finnur að svo væri ekki. „Nei alls ekki, allir leikir í þessari deild eru jafn mikilvægir fyrir okkur. Öll liðin eru ennþá svolítið að fikra sig áfram og það er svolítið þannig í byrjun tímabils, það er mikið eftir. En auðvitað er alltaf mikilvægt að vinna á heimavelli,“ endaði Finnur á að segja. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Körfubolti Íslenski körfuboltinn Subway-deild karla Valur Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Sjá meira
„Fyrst og fremst bara gríðarlega ánægður með sigurinn, alltaf dýrmætt í þessari deild að ná sigrum og sérstaklega hérna á heimavelli,“ byrjaði Finnur Freyr að segja í viðtali eftir leik. Finnur var ágætlega sáttur með spilamennsku síns liðs en hann vildi meina að tæki eftir því að það væri tvær vikur frá síðasta leik. „Mér fannst spilamennskan svona bera þess merki að það væru tvær vikur frá síðasta leik hjá okkur í byrjun allaveganna. Mér fannst vörnin herðast vel, sérstaklega í seinni hálfleiknum. Um leið og við náðum tökum á varnarleiknum þá tókum við svolítið pressuna af sóknarleiknum hjá okkur,“ hélt Finnur Freyr áfram. Þór var með forystuna allan annan leikhluta og megnið af þriðja leikhluta en í þeim fjórða tóku Valsmenn við sér. „Þórsarar eru auðvitað bara frábært lið og Lalli að sýna að þetta í fyrra hafi ekki verið nein tilviljun. Þeir voru að setja niður fullt af svokölluðum sjálfstraust körfum en í fjórða leikhluta fórum við að herðast í vörninni og fórum að neyða þá í erfið skot og það skilaði sér vel.“ Aðspurður hvort að sigurinn í kvöld væri mikilvægari en hver annar sigur þar sem þetta væri sigur gegn Íslandsmeisturunum sagði Finnur að svo væri ekki. „Nei alls ekki, allir leikir í þessari deild eru jafn mikilvægir fyrir okkur. Öll liðin eru ennþá svolítið að fikra sig áfram og það er svolítið þannig í byrjun tímabils, það er mikið eftir. En auðvitað er alltaf mikilvægt að vinna á heimavelli,“ endaði Finnur á að segja. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Subway-deild karla Valur Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Sjá meira