Spánverjar bestu knattspyrnustjórar Englands

Mikel Arteta og Pep Guardiola láta vel hvor af öðrum …
Mikel Arteta og Pep Guardiola láta vel hvor af öðrum í leik Arsenal og Manchester City í apríl AFP/ Darren Staples

Af fimm sem koma til greina sem knattspyrnustjóri ársins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eru fjórir af þeim spænskir. Jürgen Klopp er sá fimmti á blaði.

Þrjú af fjórum efstu liðum deildarinnar eru þjálfuð af Spánverjum. Arsenal af Mikel Arteta, Pep Guardiola hjá Manchester City og Aston Villa undir stjórn Unai Emery situr í fjórða sæti.

Andoni Iraola þjálfari Bournemouth og Jürgen Klopp hjá Liverpool eru einnig tilnefndir. Hægt er að kjósa um þjálfara ársins hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert