Fyrstu Íslandsleikarnir í keilu

Íslandsleikar Special Olympics í keilu fara fram í fyrsta sinn …
Íslandsleikar Special Olympics í keilu fara fram í fyrsta sinn í Keiluhöllinni í Egilshöll. Ljósmynd/ÍF

Fyrstu Íslandsleikar Special Olympics í keilu hófust í dag í Keiluhöllinni í Egilshöll.

Keppni mun standa yfir í dag og á morgun, báða dagana frá klukkan 16.50 til 18.50, þar sem alls verða spilaðir fjórir leikir.

Verðlaunaafhending fer fram strax að keppni lokinni eftir seinni keppnisdag á morgun.

Í tilkynningu frá Íþróttasambandi fatlaðra segir að Laufey Sigurðardóttir, þjálfari keiludeildar Aspar, hafi haft veg og vanda af undirbúningi og skipulagi á leikunum í samstarfi við Special Olympics á Íslandi.

Keppendur eru alls 36 á Íslandsleikum Special Olympics í keilu, þar af 33 úr Ösp, tveir úr ÍR og ein úr ÍA.

Fjögur þeirra, Kristinn A. Sörensen, Adam Geir Baldursson, Rut Ottósdóttir og Edda Sighvatsdóttir, eru á leið á heimsleika Special Olympics í sumar, sem fara fram í Berlín frá 17. til 25. júní.

Þrjú þeirra koma frá keiludeild Aspar og einn frá keiludeild ÍR. 

Kynningarmyndband af fjórmenningunum má sjá hér:

Alls munu 30 keppendur frá Íslandi keppa í tíu greinum á heimsleikum Special Olympics í Berlín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert