Segjast vera með tækjabúnað til að taka til eftir sig Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. júlí 2021 15:34 Svartir sandar eru í kringum Hjörleifshöfða. Mynd/Map.is Umhverfisstofnun mun að svo stöddu ekki aðhafast vegna utanvegaaksturs við Hjörleifshöfða þar sem breski bílaþátturinn ofurvinsæli Top Gear er sagður vera við tökur.
Fréttablaðið greindi frá því í gær að menn á vegum Top Gear væru á leið til landsins. Mbl.is greindi svo frá því í dag að lögregla hefði verið kölluð til vegna utanvegaksturs við Hjörleifshöfða, þar sem unnið væri að kvikmyndaverkefni á vegum BBC fyrir Top Gear. Kvartmíluklúbburinn boðaði til svokallaðar Top Gear-sandspyrnukeppni við Hjörleifshöfða í dag en Ingólfur Arnarson, formaður klúbbsins, sagðist ekki hafa neinn tíma til að ræða málið við Vísi í dag. Sigurjón Andersen, varaformaður klúbbsins, sagðist í samtali við Vísi ekki hafa miklar upplýsingar um málið, annað en að klúbburinn væri að aðstoða við kvikmyndaverkefni. Í samtali við Vísi segir Daníel Freyr Jónsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, að fulltrúi stofnunarinnar hafi verið á vettvangi í dag til að fylgjast með eftir að ábending um málið barst. „Það hefur ekkert leyfi verið veitt fyrir þessu frá Umhverfisstofnun,“ segir Daníel Freyr en bætir við að Umhverfisstofnun hafi fengið þær upplýsingar að þeir sem stæðu að verkefninu hefðu leyfi landeigenda, en Hjörleifshöfði er í einkaeigu. „Það er alveg skýrt í lögum að heimild til aksturs utan vegar er háð leyfi Umhverfisstofnunar, segir Daníel Freyr.“ Engin umsókn hafi hins vegar borist. Með tæki og tól til að laga eftir sig Aðspurður um hvort Umhverfisstofnun ætli sér að grípa inn í segir Daníel Freyr að stofnunin hafi heimild til þess. Hins vegar hafi þeir sem stóðu að verkefninu fullvissað fulltrúa stofnunarinnar um að hreinsað yrði upp eftir aksturinn, enda hafi þeir verið með tæki og tól til þess. Fulltrúar stofnunarinnar munu hins vegar taka út svæðið síðar í vikunni til að taka út fráganginn. Staðan verður metin að því loknu. Top Gear hefur um áraraðir verið gífurlega vinsæll þáttur þar sem fjallað er um bíla. Núverandi þáttastjórnendur Top Gear eru Andrew Flintoff, Paddy McGuinnes og Chris Harris.
Mýrdalshreppur Kvikmyndagerð á Íslandi Bílar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Fleiri fréttir Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Sjá meira