Var búinn að ákveða að fara til Fenerbache en Valencia varð fyrir valinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. júlí 2020 12:00 Martin Hermannsson lék með Alba Berlin í tvö ár. Nú tekur nýtt ævintýri á Spáni við. vísir/getty
Valencia á Spáni staðfesti í morgun að Martin Hermannsson hefði skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Hann kemur til Valencia frá Alba Berlin sem hann varð tvöfaldur meistari með á síðasta tímabili. Martin hafði úr mörgum tilboðum að velja og um tíma var líklegast að hann færi til tyrkneska stórliðsins Fenerbache. En Valencia varð á endanum fyrir valinu. „Ég hef vitað af áhuga þeirra í nokkurn tíma. Fyrst var ég ekkert staðráðinn í að fara þangað. Það voru mörg lið sem ég var í sambandi við. Ég var búinn að þrengja þetta niður í þrjú lið, Valencia, Fenerbache og Baskonia,“ sagði Martin í samtali við Vísi í morgun. Eitt kvöldið var ég eiginlega búinn að ákveða að fara til Tyrklands en svo sýndi Valencia svo rosalega mikinn áhuga. Þeir yfirbuðu öll tilboð sem komu frá öðrum liðum. Og eftir að hafa talað við þjálfarann fannst mér þetta rétta skrefið. Öfugt við mörg önnur félög stendur Valencia vel að vígi fjárhagslega og það vantar ekkert upp á metnaðinn þar á bæ. Félagið hefur t.a.m. samið við Bandaríkjamanninn Derrick Williams sem var valinn númer tvö í nýliðavali NBA-deildarinnar 2011. Eina félagið sem borgaði full laun í Covid „Á síðasta tímabili var munurinn á Valencia og Alba Berlin ekkert rosalega mikill. En Alba Berlin er að missa þrjá byrjunarliðsmenn á meðan Valencia heldur flestum sínum mönnum og bætir mér og Derrick Williams við. Þeir ætla sér stóra hluti og vilja taka skref fram á við. Markmiðið er að komast í úrslitakeppnina í EuroLeague. Það heillar mjög mikið og það er staður sem ég vil vera á,“ sagði Martin. Martin segir að spænska deildin hafi verið sín draumadeild.vísir/bára „Stærsta skrefið er kannski að fara úr þýsku deildinni í þá spænsku og ég er mjög spenntur. Þetta er örugglega það félag í Evrópu sem best statt fjárhagslega í dag og mesta öryggið að vera í. Þetta var eina félagið sem borgaði full laun í Covid-ástandinu. Þeir eru að byggja nýja keppnishöll og eru með eina bestu aðstöðu í Evrópu.“ Síminn hjá Jóni Arnóri stoppaði ekki Jón Arnór Stefánsson lék með Valencia á sínum tíma og hvatti Martin til að ganga í raðir síns gamla félags. „Einn morguninn hringdi hann í mig og sagði að ég væri að fara í Valencia. Síminn hjá honum stoppaði víst ekki þar sem menn voru að segja honum að ég þyrfti að koma og þeir vildu gera stóran og langan samning við mig,“ sagði Martin. Martin og Jón Arnór léku saman í íslenska landsliðinu, m.a. á EM 2015 og 2017.vísir/bára Honum er ætlað stórt hlutverk hjá Valencia og vera aðalleikstjórnandi liðsins. „Þeir sjá mig sem næsta mann til að stjórna þessu liði næstu árin. Sam Van Rossom, sem hefur verið þarna í sjö ár, er kominn á aldur og þá vantar kannski einhvern til að taka við af honum. Það heillar mig rosalega mikið að fá lyklana að einu stærsta liði Evrópu,“ sagði Martin. Útilokar ekki að fara aftur til Berlínar Eins og áður sagði varð íslenski landsliðsmaðurinn tvöfaldur meistari með Alba Berlin á síðasta tímabili. Hann segir að árin tvö í Berlín hafi verið afar góð. Eftir mikið silfurár í fyrra vann Alba Berlin tvöfalt á þessu tímabili.GETTY/CITY-PRESS „Það var ekki auðveld ákvörðun að fara en það fyllir aðeins upp í að hafa unnið þessa tvo titla og geta skilið við liðið á þeim nótum. Ég kveð alla hjá Alba Berlin með miklum söknuði. Þetta var rosalega góður tími í Berlín, bæði hvað körfuboltann og fjölskyldulífið varðar. Okkur leið vel þarna og það er aldrei að vita að maður fari aftur þangað,“ sagði Martin að lokum.
Spænski körfuboltinn Mest lesið Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Sópur á lofti í Smáranum? Körfubolti Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Íslenski boltinn Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Enginn Viktor Gísli en Þorsteinn Leó í hópnum Sport Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Handbolti „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Körfubolti Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Íslenski boltinn Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Uppgjör og viðtöl: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjör og viðtöl: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí Í beinni: Keflavík - Álftanes | Sleppa svanirnir lifandi úr sláturhúsinu? Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Sópur á lofti í Smáranum? Verður fyrsta konan til að dæma í úrslitakeppni NBA í tólf ár Segir að hann verði bráðum bestur í NBA „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Valur - Höttur 94-74 | Valsmenn taka forystuna í einvíginu Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Curry reyndi að fá Clark til Under Armour en Nike hafði betur Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið Baulað á Sixers en liðið kom til baka og komst áfram „Við bara fóðruðum dýrið og dýrið borðaði“ „Þær skoruðu full auðveldlega á okkur í dag“ „Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag“ Uppgjörið: Keflavík - Fjölnir 88-72 | Deildarmeistararnir flugu í undanúrslit Uppgjör, viðtöl og myndir: Haukar - Stjarnan 80-78 | Haukasigur eftir dramatík LeBron fer fyrir ógnarsterku liði Bandaríkjanna á ÓL Golden State komst ekki í úrslitakeppnina en Lakers verður með „Erum að spila á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og þurfum að vera klárar“ „Náðum að keyra upp hraðann á réttum mómentum“ „Ég held að þetta komi bara með reynslunni“ „Náðum að valta yfir þær í seinni hálfleik“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Valur 92-59 | Einstefna og grænar einum sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 93-75 | Grindvíkingar flugu inn í undanúrslitin Leggur skóna á hilluna Arnór átti Play leiksins: „Hann var stórkostlegur“ Sjá meira