Mistókst að mynda ríkisstjórn eftir fjórðu kosningarnar á tveimur árum Samúel Karl Ólason skrifar 4. maí 2021 22:37 Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. EPA/DEBBIE HILL Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, mistókst að mynda ríkisstjórn og fer stjórnarmyndunarumboðið nú líklega til pólitískra andstæðinga hann eftir að frestur Netanjahús rann út á miðnætti í Ísrael.
Algjör pattstaða hefur verið við lýði í stjórnmálum Ísraels í rúm tvö ár en á því tímabili hafa verið haldnar fjórar kosningar, án þess að tekist hafi að mynda langlífa ríkisstjórn. Netanjahú, sem er 71 árs gamall, hefur setið í embætti forsætisráðherra frá árinu 2009 en hann var einnig forsætisráðherra í þrjú ár á tíunda áratug síðustu aldar. Likud-flokki hans og bandamönnum þeirra hefur ekki tekist að halda meirihluta sínum síðustu ár og samhliða því hefur Netanjahú verið ákærður fyrir spillingu. Hann hefur þó neitað öllum ásökunum sem hafa verið lagðar fram gegn honum. Reuven Rivlin, forseti Ísraels, mun nú veita öðrum þingflokki stjórnarmyndunarumboð og er búist við því að Yesh Atid flokkurinn fái það. Sá flokkur fékk næst flest atkvæði í kosningunum sem fóru fram þann 23. mars. Samkvæmt frétt Times of Israel getur Rivlin þó einnig veitt þinginu í heild stjórnarmyndunarumboð. Þá hefði þingið 21 dag til að finna óflokksbundinn forsætisráðherra sem nyti stuðnings minnst 61 þingmanns, af 121. Geti hvorki annar þingflokkur né þingið myndað ríkisstjórn á næstu sjö vikum, verður boðað til nýrra kosninga. Reuters segir að þráteflið í Ísrael megi að miklu leyti rekja til lagavandræða Netanjahús. Nokkrir mögulegir bandamenn hans hafi heitið því að mynda ekki ríkisstjórn með forsætisráðherra sem verið væri að rétta yfir fyrir spillingu.
Ísrael Tengdar fréttir Þjóðarsorg eftir versta slys í sögu Ísraels Minnst 44 eru látin eftir að fjöldi tróðst undir á fjölmennri trúarhátíð í Ísrael í gærkvöldi. Á annað hundrað slasaðist. 30. apríl 2021 13:16 Netanjahú falið að mynda nýja stjórn Reuven Rivlin Ísraelsforseti hefur veitt Benjamín Netanjahú, starfandi forsætisráðherra landsins, umboð til að mynda nýja ríkisstjórn. 6. apríl 2021 11:34 Stefnir í enn eitt þráteflið í Ísrael Horfur eru á því að fylking hægriflokka undir forystu Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra, nái ekki meirihluta þingsæta í kosningunum sem fóru fram í Ísrael í gær. Jafnvel gæti svo farið að lítill flokkur arabískra íslamista verði í oddastöðu þegar endanlegar niðurstöður liggja fyrir. 24. mars 2021 13:03 Fjórðu kosningarnar á tveimur árum Þingkosningar fara fram í Ísrael í dag – þær fjórðu á tveimur árum. Almennt er litið á kosningar sem þjóðaratkvæðagreiðslu um forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú. 23. mars 2021 07:56 Netanjahú má ekki gefa bóluefni Ísraels Avichai Mandelblit, dómsmálaráðherra Ísraels, hefur varað Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, um að hann geti ekki einn tekið ákvörðun um að gefa aukaskammta ríkisins af bóluefni til bandamanna ríkisstjórnar sinnar. 2. mars 2021 13:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Vopnahlé í sjónmáli? Erlent Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Sjá meira
Þjóðarsorg eftir versta slys í sögu Ísraels Minnst 44 eru látin eftir að fjöldi tróðst undir á fjölmennri trúarhátíð í Ísrael í gærkvöldi. Á annað hundrað slasaðist. 30. apríl 2021 13:16
Netanjahú falið að mynda nýja stjórn Reuven Rivlin Ísraelsforseti hefur veitt Benjamín Netanjahú, starfandi forsætisráðherra landsins, umboð til að mynda nýja ríkisstjórn. 6. apríl 2021 11:34
Stefnir í enn eitt þráteflið í Ísrael Horfur eru á því að fylking hægriflokka undir forystu Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra, nái ekki meirihluta þingsæta í kosningunum sem fóru fram í Ísrael í gær. Jafnvel gæti svo farið að lítill flokkur arabískra íslamista verði í oddastöðu þegar endanlegar niðurstöður liggja fyrir. 24. mars 2021 13:03
Fjórðu kosningarnar á tveimur árum Þingkosningar fara fram í Ísrael í dag – þær fjórðu á tveimur árum. Almennt er litið á kosningar sem þjóðaratkvæðagreiðslu um forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú. 23. mars 2021 07:56
Netanjahú má ekki gefa bóluefni Ísraels Avichai Mandelblit, dómsmálaráðherra Ísraels, hefur varað Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, um að hann geti ekki einn tekið ákvörðun um að gefa aukaskammta ríkisins af bóluefni til bandamanna ríkisstjórnar sinnar. 2. mars 2021 13:03