Makamál

Fyrsta blikið í opinni dagskrá í kvöld: Sendir mömmu sína á stefnumót

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Stefnumótaþátturinn Fyrsta blikið verður í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld klukkan 18:50.
Stefnumótaþátturinn Fyrsta blikið verður í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld klukkan 18:50.

Það verður vægast sagt mikil spenna í raunveruleika- og stefnumótaþættinum Fyrsta blikið í kvöld.

Fjórði þáttur seríunnar verður á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 18:50 og munu áhorfendur fá að kynnast fjórum einstaklingum og fylgja þeim á blind stefnumót.

Par 1

Fyrsta par kvöldsins eru sjónvarpsstjarnan Bassi Maraj og súpermódelið Úlfar. Þetta er í fyrsta skipti sem Bassi fer á stefnumót og er ekki laust við að það örli fyrir smá stressi hjá okkar manni. 

Sigurjón Baltasar Vilhjálmsson, oftast kallaður Bassi Maraj er 22 ára gamall búsettur í Reykjavík. 

Þó svo að Bassi sé vanur því að vera fyrir framan myndavélarnar þá stígur hann hressilega út fyrir þægindarammann sinn þetta kvöld. 

Úlfar Logason er 28 ára gamall og búsettur í Reykjavík. 

Úlfar hefur starfar bæði sem ljósmyndari og fyrirsæta í Berlín er starfar í dag í raftækjaverslun í Reykjavík. 

Báðir eru þeir Úlfar og Bassi miklir húmoristar og er óhætt að segja að samræður kvöldsins séu í frumlegri kantinum. Það verður því spennandi að fylgjast með. 

Par 2

Annað par kvöldsins eru Selfossmærin Sigurbjörg Grétarsdóttir og ólívukóngurinn Sighvatur Frank Cassata. 

Sigurbjörg Grétarsdóttir er 66 ára gömul og búsett á Selfossi.

Það er óhætt að segja að það séu fleiri en Sigurbjörg og Cassata sem eru með fiðring í maganum fyrir stefnumótinu því það vill svo skemmtilega til að Sibba, eins og hún er alltaf kölluð, er móðir þáttarstjórnanda. 

Sighvatur Frank Cassata er 66 ára gamall og búsettur í Hafnarfirði. 

Það verður því afar forvitnilegt að fylgjast með pörum kvöldsins og óhætt að segja að mikil spenna verði í loftinu eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan. 

Klippa: Fyrsta blikið - 5. þáttur

Fyrir áhugasama og einlæga Fyrsta bliks aðdáendur er hægt að fylgjast með, og jafnvel sjá skemmtilegt aukaefni, á Instagramsíðu Fyrsta bliksins.

Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. 

Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur. 

Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.


Tengdar fréttir

„Ef þú elskar sjóinn þá elskarðu mig“

Fjölmiðlakonan Sigga Lund var ein af þeim sem fór á blint stefnumót í fjórða þætti fyrsta bliksins en hún og bókasafnsfræðingurinn Jón Tryggvi áttu svo sannarlega nokkra gullmola þetta kvöld. 

Ása Fönn bíður eftir að verða uppgötvuð

Í þriðja þætti Fyrsta bliksins sem sýndur var á Stöð 2 síðasta föstudagskvöld voru tvö pör leidd saman á blind stefnumót. Annað paranna voru þau Ása Fönn og Magnús Helgi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×