Hátt í 20 ökumenn í vandræðum á heiðum og fjallvegum Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. desember 2020 22:48 Björgunarsveitarmenn að störfum í óveðri á höfuðborgarsvæðinu í febrúar. Vísir/vilhelm Nokkur erill hefur verið hjá björgunarsveitum á landinu í kvöld, sem kallaðar hafa verið út hátt í 20 sinnum til að aðstoða ökumenn í vandræðum. Veður er slæmt í öllum landshlutum og verður áfram næstu daga.
Davíð Már Bjarnason upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir í samtali við Vísi að byrjað hafi verið að kalla björgunarsveitir út um fimmleytið og áfram borist verkefni fram eftir kvöldi. Aðallega hafi fólk þurft aðstoð á Norðurlandi og Austurlandi en seinnipart kvölds hafi hjálparbeiðnir tekið að berast frá Vesturlandi. Davíð segir að öll verkefnin, á bilinu 15-20 talsins, hafi lotið að því að aðstoða ökumenn bíla í vandræðum vegna færðar eða veðurs, aðallega á fjallvegum og heiðum. „Ég hef verið að benda á að ferðaveður á þessum fjallvegum er með lakara móti og við bendum fólki eindregið á að sé það að ferðast milli landshluta gái það vel að upplýsingum um færð og veður og hugi að útbúnaði sínum og bílanna, þannig að sé öruggt,“ segir Davíð. Til dæmis hafi verið farið í útköll á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku en samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar eru vegirnir annars vegar lokaður og hins vegar ófær. Björgunarsveitir eða lögregla hafa þó ekki lokað vegum það sem af er kvöldi og Davíð segir að einhverjir hafi mögulega freistast til að fara yfir. „En við erum viðbúin áfram og mjög meðvituð um að viðvaranirnar gilda fram á föstudag. Við erum orðin nokkuð vön því að halda okkur til hlés út af Covid og fleira og ég held að við verðum að temja okkur það í svona veðrum,“ segir Davíð. Upplýsingar um færð á vegum má nálgast á vef Vegagerðarinnar.
Veður Björgunarsveitir Tengdar fréttir Neyðarskýlin opin allan sólarhringinn vegna kuldakastsins Neyðarskýlin fjögur sem Reykjavíkurborg rekur – Konukot, gistiskýlið á Lindargötu, neyðarskýlið á Granda og tímabundið neyðarskýli fyrir konur – verða öll opin allan sólarhringinn frá 3.til 7. desember, vegna kuldakastsins sem framundan er. 2. desember 2020 14:46 Appelsínugul viðvörun á Suðausturlandi: Hviður allt að 45 m/s Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir Suðausturland sem tekur gildi klukkan 16 í dag og gildir til miðnættis annað kvöld. 2. desember 2020 10:03 Stormur, stórhríð og hörkufrost í kortunum Í dag, á morgun og fram á föstudag er útlit fyrir fyrsta alvöru norðanáhlaup vetrarins með stormi, stórhríð og ísköldu heimskautalofti sem herðir á frostinu. 2. desember 2020 06:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Hraun mjakast yfir varnargarð Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Innlent Fleiri fréttir Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkisstjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Sjá meira
Neyðarskýlin opin allan sólarhringinn vegna kuldakastsins Neyðarskýlin fjögur sem Reykjavíkurborg rekur – Konukot, gistiskýlið á Lindargötu, neyðarskýlið á Granda og tímabundið neyðarskýli fyrir konur – verða öll opin allan sólarhringinn frá 3.til 7. desember, vegna kuldakastsins sem framundan er. 2. desember 2020 14:46
Appelsínugul viðvörun á Suðausturlandi: Hviður allt að 45 m/s Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir Suðausturland sem tekur gildi klukkan 16 í dag og gildir til miðnættis annað kvöld. 2. desember 2020 10:03
Stormur, stórhríð og hörkufrost í kortunum Í dag, á morgun og fram á föstudag er útlit fyrir fyrsta alvöru norðanáhlaup vetrarins með stormi, stórhríð og ísköldu heimskautalofti sem herðir á frostinu. 2. desember 2020 06:57