Heimsmarkmiðin

Óvissa um næstu máltíð nýr veruleiki margra barna

Heimsljós
Save The Children Barnaheill

Alþjóðasamtökin Barnaheill – Save the Children benda á að að heil kynslóð barna hafi orðið fyrir áhrifum heimsfaraldursins.

Alþjóðasamtökin Barnaheill – Save the Children minna á að milljónum barna hafi um heim allan verið ýtt út í fátækt með miklu fæðuóöryggi og óvissu um næstu máltíð, nú þegar ár er liðið frá því heimsfaraldur kórónuveirunnar hófst. „Í mörgum löndum hafa skólar verið lokaðir í heilt ár sem hefur skert aðgengi milljóna barna að menntun en samanlagt hafa börn út um allan heim misst 112 milljarða daga úr skóla frá því að faraldurinn hófst. Menntun barna og fæðuöryggi er eitt af meginstoðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem öll börn í heiminum eiga rétt á,“ segir í frétt Barnaheilla.

Samtökin benda á að að heil kynslóð barna hafi orðið fyrir áhrifum heimsfaraldursins og börn hafi þurft að aðlaga líf sitt að nýjum takmörkunum sem hafi meðal annars haft áhrif á skólagöngu þeirra, efnahag fjölskyldna þeirra, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, auk þess sem mörg börn hafi misst tengsl við fjölskyldu og vini. Samtökin segja enn fremur að sálfræðilegar afleiðingar heimsfaraldursins hafi einnig tekið sinn toll af heilsu barna, sem hafi valdið kvíða og þunglyndi hjá mörgum börnum.

„Alþjóðasamtökin Barnaheill – Save the Children hafa unnið í fremstu víglínu við það að aðstoða börn í heimsfaraldri til þess að minnka þann skaða sem börn hafa orðið fyrir vegna Covid-19. Á síðastliðnu ári hafa samtökin aðstoðað 29,5 milljón börn og fjölskyldur þeirra í 88 löndum,“ segir í fréttinni. „Barnahjónabönd hafa aukist gífurlega í kjölfar Covid-19. Um 12 millj­ón­ir stúlkna undir 18 ára eru á hverju ári þvingaðar í hjóna­band og áætla má að vegna Covid-19 eigi rúm­lega 2,5 millj­ón­ir stúlkna til viðbótar á hættu á því að vera þvingaðar í hjóna­band fyr­ir árið 2025. Lokanir skóla eru helsti áhrifavaldur þess að stúlkur séu giftar ungar og er því mikilvægt að skólar opni sem allra fyrst svo að börn geti haldið áfram sinni menntun.“

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×