Gervigreindin næsta stóra byltingin og nú talar hún íslensku Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 15. mars 2023 19:59 Óhætt er að segja að um mikið tæknistökk sé að ræða. Vísir/Sigurjón/Arnar Besta og stærsta gervigreind sem opin er almenningi kann nú íslensku. Stofnandi Miðeindar segir gervigreindina næstu stóru byltinguna í okkar samfélagi. Rithöfundur og fyrirlesari segir hina íslenskumælandi gervigreind einungis geta hafa orðið til vegna aukinnar „nándar“ tækninnar og mannsins með notkun snjallsíma og samfélagsmiðla. Á þessari nánd byggi hún sína þekkingu.
Gervigreindin, sem við höfum lesið um í hinum ýmsu framtíðarsögum, er mætt í öllu sínu veldi en sú sem talin er vera best talar nú íslensku. Fyrirtækið Miðeind hefur að undanförnu unnið með bandaríska fyrirtækinu Open AI, sem stendur að baki gervigreindarlíkaninu Chat GPT 4, og kennt greindinni íslensku. „Þetta er besta og stærsta gervigreindarlíkan sem opið er fyrir almenning og almenna notendur í dag,“ segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Miðeindar sem er hæstánægður með þetta þróunarverkefni. Vanalega eru stór mállíkön á borð við Chat GTP þjálfuð með ógrynni af textum af internetinu þegar verið er að kenna þeim stór og útbreidd tungumál. Það sama gildir hins vegar ekki um örtunguna íslensku og þurfti greindin smá hjálp. Mannlegi þátturinn skapar sérstöðuna „Það sem er einstakt við þetta verkefni er að við fengum 40 sjálfboðaliða hér á landi til að hjálpa okkur við að búa til spurningar og til að meta svör úr þessu gervigreindarneti sem hjálpar til við að ýta því í rétta átt þannig að það kunni betur að skilja og svara á íslensku. Það er þessi mannlegi þáttur sem er svolítið einstakur í þessu og þetta net hefur einungis verið þjálfað með þessum hætti á íslensku og ensku.“ Ævintýrið hófst upprunalega með heimsókn forseta Íslands í Kísildal fyrir tæpu ári en þá funduðu forseti og sendinefnd frá Íslandi með Sam Altman, forstjóra Open AI. „Ég verð bara að segja eins og er að við þurftum að klípa okkur í handlegginn á hverjum degi við tilhugsunina um að þarna værum við litlu Íslendingarnir í þessu merkilega þróunarverkefni sem ég held að sé alveg veraldarsögulegt. Í tilefni af fréttum af hinu íslenskumælandi gervigreindarlíkani mælti blaðamaður sér mót við Berg Ebba Benediktsson, rithöfund og fyrirlesara, sem hefur stundað nám í svokölluðum framtíðarfræðum í Toronto og skrifað mikið um gervigreind. Í ljósi þess að umfjöllunarefnið er nýstárlegt og stundum dálítið flókið ákvað fréttastofa að birta viðtalið við Berg Ebba í heild sinni þar sem hinar ýmsu hliðar á gervigreind eru skoðaðar. Hér er hægt að nálgast viðtalið í heild fyrir þau sem hafa áhuga á að kynna sér gervigreind nánar. Bergur segir kenninguna um gervigreind hafa verið til í áratugi. Hún byggist á því að tölvur geti öðlast hugsun sem jafnast á við mannlega hugsun og í rauninni tekið yfir ýmis verkefni sem mannshugurinn gat áður einungis leyst sjálfur. En getur þetta framtak jafnvel orðið liður í því að bjarga þessari örtungu? „Það er alveg hægt að stilla þessu upp svona. Ég var sjálfur að vinna svolítið að þessum máltæknimálum í stjórn Almannaróms og þar var í rauninni markmiðið að koma einkafyrirtækjum, yfirvöldum og akademíska samfélaginu í samstarf við þessi stóru tæknifyrirtæki úti í heimi. Þetta er ótrúlega stórt og göfugt markmið. Stundum stillti maður því upp þannig að þetta sé bara síðasti séns til að bjarga þessu tungumáli okkar. Það er rosalega dramatískt að stilla þessu svona upp, þetta er svona svipað eins og málverndunarsinnarnir á 19. öld þegar við vorum að berjast fyrir sjálfstæði okkar út af erlendum áhrifum frá Danmörku og víðar en kannski er dramatíkin rétta leiðin til að nálgast þetta.“
Íslensk tunga Tækni Gervigreind Tengdar fréttir Magnaður áfangi fyrir íslenskuna Það er sannarlega magnaður áfangi fyrir íslenskuna að tungumálið okkar hafi verið valið í þróunarfasa fyrir nýjustu útgáfu gervigreindarmállíkansins GPT-4, fyrst allra tungumála fyrir utan ensku. Samstarfsverkefni með fyrirtækinu OpenAI hefur komið því til leiðar að stærsta gervigreindarnet heims er nú fínþjálfað til þess að skilja og miðla upplýsingum á íslensku. 15. mars 2023 07:01 Íslenskt máltæknifyrirtæki í samstarfi við OpenAI um GPT-4 Íslenska máltæknifyrirtækið Miðeind hefur síðustu mánuði aðstoðað bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI við að þjálfa nýjustu kynslóð GPT líkansins. Þetta er í fyrsta sinn sem OpenAI gerir tilraunir með sérstaka þjálfun risamállíkans síns á öðru tungumáli en ensku, og þar varð íslenska fyrir valinu. 14. mars 2023 18:05 Embla komin með nýjar raddir frá Microsoft Raddstýrða snjallforritið Embla fék nýjar raddir í dag. Embla er radd-snjallforrit frá máltæknifyrirtækinu Miðeind sem skilur og talar íslensku. Embla getur svarað hinum ýmsu spurningum, til dæmis um ferðir Strætó, reiknað stærðfræðidæmi, stafsett orð, umbreytt mælieiningum og gjaldmiðlum og ýmislegt fleira. 16. nóvember 2022 09:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Magnaður áfangi fyrir íslenskuna Það er sannarlega magnaður áfangi fyrir íslenskuna að tungumálið okkar hafi verið valið í þróunarfasa fyrir nýjustu útgáfu gervigreindarmállíkansins GPT-4, fyrst allra tungumála fyrir utan ensku. Samstarfsverkefni með fyrirtækinu OpenAI hefur komið því til leiðar að stærsta gervigreindarnet heims er nú fínþjálfað til þess að skilja og miðla upplýsingum á íslensku. 15. mars 2023 07:01
Íslenskt máltæknifyrirtæki í samstarfi við OpenAI um GPT-4 Íslenska máltæknifyrirtækið Miðeind hefur síðustu mánuði aðstoðað bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI við að þjálfa nýjustu kynslóð GPT líkansins. Þetta er í fyrsta sinn sem OpenAI gerir tilraunir með sérstaka þjálfun risamállíkans síns á öðru tungumáli en ensku, og þar varð íslenska fyrir valinu. 14. mars 2023 18:05
Embla komin með nýjar raddir frá Microsoft Raddstýrða snjallforritið Embla fék nýjar raddir í dag. Embla er radd-snjallforrit frá máltæknifyrirtækinu Miðeind sem skilur og talar íslensku. Embla getur svarað hinum ýmsu spurningum, til dæmis um ferðir Strætó, reiknað stærðfræðidæmi, stafsett orð, umbreytt mælieiningum og gjaldmiðlum og ýmislegt fleira. 16. nóvember 2022 09:41