Talsvert um að fólk afþakki bólusetningu með efni AstraZeneca Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. febrúar 2021 11:45 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm Talsvert hefur borið á því undanfarið að fólk sé að afþakka bólusetningu með bóluefni AstraZeneca á þeim grunni að það sé ekki jafn virkt og önnur bóluefni en einnig vegna þess að það telur aukaverkanir af því bóluefni meiri en af hinum bóluefnunum.
Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag. Hann sagðist ekki telja neina ástæðu fyrir því fyrir fólk að neita einu bóluefni umfram önnur. Virkni AstraZeneca væri eitthvað minni en af öðrum bóluefnum en munurinn væri lítill og ekki það mikill að það skipti neinu máli varðandi verndina sem verið væri að sækjast eftir. Þá væri munurinn á aukaverkunum af AstraZeneca og öðrum bóluefnum sennilega ekki mjög mikill þegar upp væri staðið. Aðspurður hvort þetta væri útskýrt fyrir fólki ef og þegar það afþakkaði bólusetningu með AstraZeneca-efninu kvaðst Þórólfur gera ráð fyrir því að þetta væri útskýrt. Hann vissi þó ekki nákvæmlega hvernig samskiptin væru á milli þess sem væri að fá bólusetningu og þess sem væri að bólusetja. Þá sagði Þórólfur ekki hægt að leyfa fólki að ákveða hvaða bóluefni það vildi og hvaða bóluefni það vildi ekki. Framkvæmdin yrði mjög erfið. Fólk geti hins vegar misst forgang í bólusetningu afþakki það tiltekið bóluefni. „Hvort þeir sem neita AstraZeneca verða bólusettir, það er ekki búið að taka ákvörðun um það. Ég býst nú ekkert við því að þeim verði meinuð bólusetning en þeir munu kannski ekki fá þann forgang sem þeir höfðu,“ sagði Þórólfur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira