Fordæma vinnubrögð lögreglu

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður …
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ, og Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður. Samsett mynd

Stjórn Blaðamannafélags Íslands fordæmir að Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður hljóti stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið. Í tilkynningu BÍ segir að samkvæmt upplýsingum sem Ingi Freyr fékk hjá lögreglu við skýrslutöku fyrir fáeinum dögum er sakarefnið það að hann var viðtakandi tölvupósts. Hefur hann haft réttarstöðu sakbornings í um hálft annað ár án þess að vera upplýstur um það.

Stjórn BÍ lýsir jafnframt yfir miklum áhyggjum að það sé nú talið mögulega saknæmt athæfi að taka á móti tölvupóstum eða hvers kyns upplýsingum.

„Það er einmitt kjarninn í vinnu hvers blaðamanns: Að taka á móti upplýsingum, meta trúverðugleika þeirra og fréttgildi í þágu almennings,“ segir á vef BÍ.

Þá bendir stjórnin á fáránleika þeirra ákvörðunar lögreglustjórans á Norðurlandi eystra að veita blaðamönnum stöðu sakborninga í þessu máli, enda liggur ekki fyrir að þeir hafi gerst sekir um saknæmt athæfi. 

Óeðlilegt hvað rannsóknin hefur tekið langan tíma

Blaðamannafélagið undirstrikar að störf og tjáningarfrelsi blaðamanna njóti ríkrar verndar vegna þess sérstaka hlutverks sem fjölmiðlar gegna með tilliti til opinberrar umræðu í lýðræðisríki. 

Félagið telur einnig óeðlilegt hver rannsókn þessa máls hefur tekið langan tíma, enda hefur ríkissaksóknari sent lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra erindi þar sem óskað er eftir skýringum á töfunum. 

Það er íþyngjandi fyrir alla að hafa réttarstöðu sakbornings, en fyrir blaðamenn er það sömuleiðis mikið inngrip inn í tjáningarfrelsi þeirra og störf. Þeim mun mikilvægari almannahagsmuni þarf þar af leiðandi til að réttlæta slíkt inngrip. Stjórn Blaðamannafélagsins krefst þess að lögreglan ljúki rannsókn sinni án frekari tafa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert