Albert í hlutverki Gylfa og fékk hrós frá sérfræðingunum: Látið Albert fá boltann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. október 2020 14:01 Albert Guðmundsson á ferðinni í leiknum á móti Belgíu í gær. Vísir/Vilhelm
Albert Guðmundsson fékk stórt hlutverk í íslenska landsliðinu í leiknum á móti Belgíu og hann fékk líka mikið hrós eftir leikinn frá þeim Bjarna Guðjónssyni og Davíð Þór Viðarssyni. Í uppgjöri á leik Íslands og Belgíu á Stöð 2 Sport þá fóru þeir Bjarni og Davíð Þór vel yfir frammistöðu Alberts í leiknum og hvað hann gerði vel. „Hann var frábær og ég hefði bara viljað fá meira af honum á boltanum. Miðað við það hvernig leikurinn þróaðist þá hefði Albert átt að fá meira af boltanum á síðasta þriðjungum. Skilaboðin í hálfleik áttu að vera látið Albert fá boltann á síðasta þriðjungnum,“ sagði Bjarni Guðjónsson og hélt áfram: „Hann er klókur og kemur líkamanum á milli boltans og varnarmannsins sem er á móti honum. Hann hélt boltanum vel og hér hleypur hann aftur fyrir vörnina og skynjar plássið sem var var fyrir aftan. Albert leysir ofboðslega vel úr þeim stöðum sem hann fær,“ sagði Bjarni en um leið voru sýndar sóknir þar sem Albert var að gera mjög góða hluti. „Það er svo gott fyrir okkur að geta fundið mann í fæturna og spilað aðeins boltanum. Hann má vera mjög ánægður með leikinn sinn því hann lagði sig líka fram varnarlega og hljóp og barðist með liðsfélögunum sínum,“ sagði Bjarni. „Það má að einhverju leyti segja það að hann hafi komið inn í það hlutverk sem Gylfi Sigurðsson er með hjá þessu landsliði. Hann skilar því mjög vel í þessum leik eins og við erum búnir að vera að tala um. Ég kallaði eftir því fyrir leikinn að hann myndi sýna alvöru frammistöðu til að sýna að hann ætti heima þarna. Hann gerði það klárlega,“ sagði Davíð Þór en bætti við: „Í framhaldinu vildi maður sjá hann verða ennþá hættulegri og að hann gæti oftar komið sér í stöður þar sem hann gæti látið vaða á markið eða búið til eitthvað meira. Út á vellinum var hann bara frábær og sá leikmaður sem heillaði mig mest,“ sagði Davíð Þór Viðarsson um Albert Guðmundsson. Hér fyrir neðan má sjá sérfræðingana tala um frammistöðu Alberts Guðmundssonar á móti Belgum. Klippa: Sérfræðingarnir ánægðir með Albert Guðmundsson
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Fleiri fréttir Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Sjá meira