HK í öðru sæti eftir sigur á Fylki

Kristín Anítudóttir McMillan úr HK og Eva Rut Ásþórsdóttir, fyrirliði …
Kristín Anítudóttir McMillan úr HK og Eva Rut Ásþórsdóttir, fyrirliði Fylkis, í baráttu um boltann í Kórnum í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

HK sigraði Fylki, 1:0, í kvöld í uppgjöri liðanna í öðru og þriðja sæti 1. deildar kvenna í fótbolta í Kórnum í Kópavogi.

Isabella Eva Aradóttir skoraði sigurmark HK um miðjan síðari hálfleik og liðið er komið með tíu stig eftir fjóra leiki en er tveimur stigum á eftir Víkingi úr Reykjavík sem hefur unnið alla fjóra leiki sína og er með 12  stig.

Fylkir tapaði sínum fyrsta leik og er í þriðja sætinu með sjö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert