Mourinho segir þjálfunaraðferðir sínar og þjálfara sinna með þeim bestu í heimi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. febrúar 2021 21:21 Mourinho bendir réttilega á að Tottenham hefði þurft þrjú mörk til að vinna leik dagsins. Þeir skoruðu aðeins eitt og töpuðu 2-1. EPA-EFE/Kirsty Wigglesworth José Mourinho hrósaði leikmönnum sínum eftir að Tottenham Hotspur tapaði 2-1 gegn West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þá sagði Portúgalinn geðþekki að það væri engin krísa í gangi.
Mourinho hrósaði leikmönnum sínum óvænt eftir tap dagsins og sagði þá hafa átt meira skilið. „Ég veit ekki hvað þú átt við með krísu. Ef krísa er pirringur og sorg í búningsklefanum þá myndi ég taka undir það því enginn er ánægður og við sýndum það í þessum leik,“ sagði Mourinho í viðtali eftir leik. „Þegar lið berst eins og við gerðum þangað til á síðustu sekúndu leiksins þá er aldrei um krísu að ræða. Lið í krísu standa ekki saman í leit sinni að betri úrslitum. Ég myndi ekki segja að um krísu væri að ræða, ég myndi segja að við værum ekki að ná í nægilega góð úrslit. Það er augljóst. Við erum að tapa of mörgum leikjum.“ 'My coaching methods are second to nobody in the world' - Mourinho digs in after fifth Spurs loss in six league gameshttps://t.co/Pg1wKWLXoE pic.twitter.com/tdnM6KlKnw— Independent Sport (@IndoSport) February 21, 2021 „Úrslitin í dag hefðu átt að vera önnur. Við spiluðum frábærlega í seinni hálfleik, það er mín tilfinning. Varnarlínan þeirra var frábær, þetta er eins og deja vu. Þeir gerðu allt sem þeir gátu og gerðu okkur erfitt fyrir.“ „Nei alls ekki, engan veginn,“ sagði Mourinho aðspurður út í hvort þjálfunaraðferðir hans ættu sinn hlut í slæmu gengi Tottenham. „Stundum eru úrslitin niðurstaða margra mismunandi hluta í fótbolta og þjálfunaraðferðir mínar og þjálfarateymisins míns eru með þeim bestu í heimi.“ Að lokum var Mourinho spurður út í Gareth Bale en hann lagði upp mark Tottenham og átti skot í slá. Þjálfarinn sagði að þeir væru að reyna koma honum í gang en þar sem hann spilaði 65 mínútur á fimmtudaginn í 4-1 sigrinum á Wolfsberger í Evrópudeildinni þá hafi hann ekki getað byrjað leik dagsins.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Íslenski boltinn Kári Vagn náði níu pílna leik og stefnir á Ally Pally Sport Dæmd í bann eftir að ljúga til um krabbamein til að sleppa við bann Sport Einar Árni hættur hjá Hetti Körfubolti Segir að Ten Hag sé búinn að vera Enski boltinn Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Körfubolti „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Íslenski boltinn Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Enski boltinn Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Enski boltinn Fleiri fréttir Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ B-deildarliðið hársbreidd frá því að fara alla leið Liverpool jafnar efsta sætið að stigum Palace menn fóru mjög illa með West Ham Everton vann og er nú fimm stigum frá fallsæti Sá sem bjargaði starfi Sir Alex gæti ýtt Ten Hag nær dyrunum Guardiola æfur út í „algjörlega óásættanlegt“ leikjaálag Skytturnar skutu sér á toppinn Bikarmeistararnir leika aftur til úrslita Jóhann Berg skoraði í lífsnauðsynlegum sigri Burnley Guardiola: Palmer bað um að fá að fara í tvö ár Fyrrverandi hirti fernu-boltann Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Garnacho búinn að biðjast afsökunar Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Sjá meira