5 dagar í Meistaradeildina: Alfreð tryggði Olympiacos fyrsta sigurinn á Englandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. október 2020 11:00 Goðsögn! Alfreð Finnbogason komst á forsíður grísku blaðanna með sigurmarkinu gegn Arsenal fyrir fimm árum.
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta hefst á ný á þriðjudaginn þegar átta leikir í E til H-riðlum fara fram. Íslendingar eiga tvo fulltrúa í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á þessu tímabili; Mikael Neville Andersson sem leikur með Danmerkurmeisturum Midtjylland og Ögmund Kristinsson hjá grísku meisturunum í Olympiacos. Ögmundur og félagar eru í C-riðli með Porto, Manchester City og Marseille. Það var ansi eftirminnilegt þegar Íslendingur spilaði síðast með Olympiacos á enskri grundu í Meistaradeildinni. Jafnaldri Ögmundar og félagi hans í íslenska landsliðinu, Alfreð Finnbogason, skoraði þá sigurmark Olympiacos gegn Arsenal, 2-3, á Emirates í London. Olympiacos fékk Alfreð á láni frá Real Sociedad fyrir tímabilið 2015-16. Hann skoraði tvö mörk fyrir félagið í þrettán leikjum; eitt í 3-4 sigri á Panthrakikos í grísku úrvalsdeildinni og svo í fyrrnefndum leik gegn Arsenal. Það var jafnframt fyrsti Meistaradeildarleikur Alfreðs á ferlinum. Bæði Arsenal og Olympiacos töpuðu í 1. umferð riðlakeppninnar, Arsenal 2-1 fyrir Dinamo Zagreb og Olympiacos 0-3 fyrir Bayern München. Það var því mikið undir á Emirates þriðjudagskvöldið 29. september 2015. Pardo kom Olympiacos yfir á 33. mínútu en Theo Walcott jafnaði fyrir Arsenal tveimur mínútum síðar. Fimm mínútum fyrir hálfleik skoraði David Ospina, markvörður Arsenal, svo sjálfsmark og kom Grikkjunum aftur yfir. Alfreð kom inn á sem varamaður í hálfleik fyrir Brown Ideye. Alexis Sánchez jafnaði fyrir Arsenal á 65. mínútu en aðeins mínútu síðar skoraði Alfreð sigurmark Olympiacos með skoti af stuttu færi eftir sendingu frá Pardo. Markið má sjá hér fyrir neðan. „Það er ekki hægt að kvarta undan neinu núna,“ sagði Alfreð í samtali við Vísi eftir leikinn á Emirates. „Þetta er fyrsti sigur Olympiakos í Englandi eftir tólf töp í röð. Það er gaman að vera hluti af því. Gaman að vera hluti af sögunni.“ Alfreð varð annar Íslendingurinn til að skora í Meistaradeildinni á eftir Eiði Smára Guðjohnsen sem skoraði sjö mörk fyrir Chelsea og Barcelona. Þeir tveir ásamt Arnóri Sigurðssyni eru einu Íslendingarnir sem hafa skorað í Meistaradeildinni. Þrátt fyrir þennan frækna sigur á Arsenal á Emirates komst Olympiacos ekki í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar og varð að gera sér sæti í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar að góðu. Þótt Arsenal hafi tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í F-riðli náði liðið 2. sætinu með því að vinna Dinamo Zagreb og Olympiacos í síðustu tveimur leikjum sínum. Olivier Giroud skoraði öll mörk Arsenal í 0-3 sigri á Olympiacos í Grikklandi í lokaumferð riðlakeppninnar sem tryggði Skyttunum farseðilinn í útsláttarkeppnina. Alfreð stoppaði stutt við hjá Olympiacos en hann var lánaður Augsburg í Þýskalandi í byrjun febrúar 2016. Augsburg keypti Alfreð svo frá Real Sociedad um sumarið og hann hefur leikið þar síðan við góðan orðstír. Meistaradeildin verður áfram í beinni á Stöð 2 Sport og þar verða líka Meistaradeildarmessan og Meistaradeildarmörkin á hverju kvöldi sem leikir fara fram í riðlakeppninni. Fyrstu leikirnir í beinni verða Dynamo Kiev-Juventus (Þriðjudagurinn 20. október klukkan 16.45) og PSG-Manchester United (Þriðjudagurinn 20. október klukkan 18.50).
Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir 6 dagar í Meistaradeildina: Ronaldo og Messi mætast í fyrsta sinn fyrir jól Lionel Messi og Cristiano Ronaldo mætast í Meistaradeildinni fyrir áramót og það tvisvar sinnum. Það hefur aldrei gerst áður. 14. október 2020 10:31 7 dagar í Meistaradeildina: Fyrstu fullkomnu meistararnir Meistaradeildin í knattspyrnu fer af stað á nýjan leik á þriðjudaginn í næstu viku þegar riðlakeppnin hefst með átta leikjum í riðlum E til H. Vísir ætlar að telja niður í Meistaradeildina og í dag skoðum við magnaða meistara síðasta tímabils. 13. október 2020 11:00 Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Fótbolti Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Enski boltinn Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Fótbolti Vann mótið fárveikur og fór á sjúkrahús Sport „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti Fleiri fréttir Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Bæjarar skoði að ráða ten Hag Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Sverrir Ingi lagði upp sigumarkið sem galopnaði toppbaráttuna Samherjar Alberts náðu í stig í Mílanó Uppgjör og viðtöl: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Hilmir Rafn kominn á blað í Noregi Sjáðu frábært mark hjá Arnóri Ingva sem dugði þó skammt Langt hlé gert á leik hjá Guðrúnu vegna mikillar rigningar Jón Dagur lagði upp mark Birkir skoraði fyrir Brescia Katla tryggði Kristianstad sigur Sjá meira
6 dagar í Meistaradeildina: Ronaldo og Messi mætast í fyrsta sinn fyrir jól Lionel Messi og Cristiano Ronaldo mætast í Meistaradeildinni fyrir áramót og það tvisvar sinnum. Það hefur aldrei gerst áður. 14. október 2020 10:31
7 dagar í Meistaradeildina: Fyrstu fullkomnu meistararnir Meistaradeildin í knattspyrnu fer af stað á nýjan leik á þriðjudaginn í næstu viku þegar riðlakeppnin hefst með átta leikjum í riðlum E til H. Vísir ætlar að telja niður í Meistaradeildina og í dag skoðum við magnaða meistara síðasta tímabils. 13. október 2020 11:00