Mexíkósk stjórnvöld rannsaka nú fullyrðingar um að sex mexíkóskar konur hafi verið sendar í ófrjósemisaðgerð á meðan þær voru í haldi í bandarískri varðhaldsstöð, að sögn Marcelo Ebrard utanríkisráðherra Mexíkó. BBC greinir frá.
Hjúkrunarfræðingur sem starfaði í varðhaldsstöðinni fullyrti í síðustu viku að legnám væru framkvæmd á innflytjendum í Bandaríkjunum án viðeigandi samþykkis þeirra.
Mexíkósk stjórnvöld segja aðgerðirnar óviðunandi. „Við erum nú þegar í sambandi við sex [mexíkóskar konur] sem gætu hafa orðið fyrir þessari meðferð,“ sagði Ebrard á blaðamannafundi í gær. „Ef það fæst staðfest er það stórmál og gera verður ráðstafanir.“
Á mánudag sagði Andrés Manuel Lóbez Obrador, forseti Mexíkó, að ríkisstjórn hans gætu höfðað mál á hendur Bandaríkjunum ef ásakanirnar yrðu staðfestar. Yfir 150 þingmenn Bandaríkjaþings, þar á meðal Demókratinn Nancy Pelosi, hafa kallað eftir rannsókn á varðstöðinni.
Aðgerðirnar eru sagðar hafa verið framkvæmdar í einkarekinni varðhaldsstöð í Georgíu, Irwin County Detention Center, en hluti þeirra sem þar dvelja eru þar á vegum innflytjenda og tollamála, Immigration and Customs Enforcement (ICE). Forsvarsmenn varðhaldsstöðvarinnar og ICE hafa vísað ásökununum á bug og sagt þær settar fram án nokkurra sannana.
Hjúkrunarfræðingurinn sem greindi fyrst frá málinu sagði að konurnar hafi tjáð henni að þær skildu ekki hvers vegna þær þyrftu að fara í legnám.