Metverðbólga og vextir á hraðri uppleið Heimir Már Pétursson skrifar 22. júní 2022 19:20 Mætti halda að seðlabankastjóri horfi til himins í bæn um lækkun verðbólgu en hann rökstuddi skarpar hækkanir Seðlabankans á meginvöxtum á fundi í morgun. Vísir/Vilhelm Verðbólga hefur ekki verið meiri í tólf ár og meginvextir Seðlabankans eru orðnir hærri en þeir voru áður en vaxtalækkunarferli bankans hófst fyrir þremur árum. Seðlabankastjóri og stjórnvöld leggja mikla áherslu á skynsama kjarasamninga í haust til að ná verðbólgunni niður.
Seðlabankinn hefur hækkað meginvexti sína hratt á undanförnum mánuði eða um samanlagt tvö prósentustig og eru þeir nú komnir í 4,75 prósent. Beint samhengi er á milli verðbólgu og vaxta því Seðlabankanum ber að halda verðbólgu sem næst 2,5 prósentum. Hér sjáum við myndrænt hvernig þróunin hefur verið frá vaxtalækkunarferli Seðlabankans hófst vorið 2019 þegar meginvextir voru lækkaðir úr 4,5 prósentum í fjögur og verðbólgan var um þrjú prósent. Eftir það tók við hver vaxtalækkunin af annarri þar til þeir voru 0,75 prósent og höfðu þá aldrei verið lægri. Á einu ári hefur síðan hallað á ógæfuhliðina með vaxandi verðbólgu í kovidfaraldi og síðan innrás Rússa í Úkraínu. Ásgeir Jónsson í svipaðri stellingu og John F. Kennedy forseti Bandaríkjanna var á frægri mynd. Seðlabankastjóri hefur þungar áhyggjur af þróun efnahagsmála.Vísir/Vilhelm Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir mjög mikilvægt að ná verðbólgunni niður eins hratt og hægt væri. „Við teljum að við þurfum að bregðast tiltölulega skarpt við til að ná tökum á þessari verðbólgu sem komin er fram. Það sé betra að bregðast fljótt við. Þá getum við náð stjórn á þessu og þá vonandi getum við lækkað vexti fyrr,“ segir Ásgeir. Heimilin standi tiltölulega vel þar sem mörg þeirra hafi nú lán á nafnvöxtum og raunvextir þessara lána enn neikvæðir. „Við erum að vinna að þessu fyrir heimilin. Verðbólga kemur illa við heimilin. Hátt fasteignaverð kemur illa við heimilin. Við erum núna að reyna að vinna í haginn fyrir næstu kjarasamninga. Að aðilar vinnumarkaðarins sjái það að verðbólga er ekki að verða til framtíðar á Íslandi. Við ætlum að taka á vandanum,“ segir seðlabankastjóri. Þess vegna væri mikilvægt að allir stæðu saman eins og gert hafi verið í þjóðarsáttar- og lífskjarasamningunum. „Okkur er sama hvað þeir heita svo lengi sem það felur í sér að allir aðilar séu að vinna saman. Sýni skilning á þeim vanda sem við erum að eiga við,“ segir Ásgeir Jónsson.
Seðlabankinn Efnahagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Veiðileyfasali fékk engar bætur dæmdar fyrir þjófnað í Kjarrá Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira