Shkreli látinn laus úr fangelsi Kjartan Kjartansson skrifar 18. maí 2022 22:14 Martin Shkreli eignaðist fáa vini með framferði sínu sem forstjóri lyfjafyrirtækisins Turing Pharmaceuticals. AP/Susan Walsh Bandarísk yfirvöld slepptu Martin Shkreli, fyrrverandi forstjóra lyfjafyrirtækis, úr fangelsi eftir að hann hafði afplánað hluta sjö ára fangelsisdóms sem hann hlaut árið 2017. Shkreli hefur meðal annars verið nefndur „hataðasti maður internetsins“ vegna gríðarlegrar verðhækkunar á alnæmislyfi.
Alríkisdómari dæmdi Shkreli í sjö ára fangelsi fyrir að ljúga að fjárfestum í vogunarsjóði sem hann rak og að svindla á fjárfestum í lyfjafyrirtækinu Turing Pharmaceuticals. Honum var sleppt snemma úr fangelsi í Pennsylvaníu og færður á áfangaheimili í dag, að sögn AP-fréttastofunnar. Hann hefði annars ekki átt að losna fyrr en í september á næsta ári. Shkreli varð frægur að endemum þegar fyrirtæki hans keypti framleiðslurétt á lyfinu Daraprim sem er notað gegn sýkingu hjá alnæmis-, malaríu- og krabbameinssjúklingum og hækkaði verðið á því um 5.000%. Hækkunin skýrði hann með því að svona væri kapítalisminn í verki og sjúkratryggingar gerðu sjúklingum kleift að fá lyfið þrátt fyrir hana. Eftir að Shkreli var handtekinn árið 2015 sagði hann af sér sem forstjóri. Hann bakaði sér enn frekari óvinsældir þegar hann keypti eina eintakið sem til var af plötu sem bandaríska rapphljómsveitin Wu-tang gerði. Bandaríska ríkið lagði hald á plötuna í tengslum við saksókn Shkreli. Á meðan Shkreli beið refsingar eftir sakfellingu gekk hann laus gegn tryggingu. Dómari afturkallaði trygginguna og senda hann í fangelsi vegna umdeildra tísta þar sem hann bauð meðal annars verðlaun hverjum þeim sem gæti fært honum lokk úr hári Hillary Clinton, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, árið 2016.
Bandaríkin Erlend sakamál Tengdar fréttir Seldu einstaka plötu „hataðasta manns internetsins“ Búið er að selja einstaka plötu Wu-Tang Clan sem var áður í eigu manns sem var á árum áður kallaður „hataðasti maður internetsins. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í dag að platan hefði verið seld en ekki fylgdi tilkynningunni hver hefði keypt plötuna né hver verðmiðinn hefði verið. 27. júlí 2021 22:49 „Hataðasti maður internetsins“ brast í grát og dæmdur í sjö ára fangelsi Shkreli sveik fé úr fjárfestum tveggja sjóða sem hann stofnaði. 9. mars 2018 19:50 Shkreli í steininn fyrir tíst um Hillary Clinton Fjárfestirinn sem ávann sér almannahatur þegar hann stórhækkaði verð á alnæmislyfi bauð fylgjendum sínum á Twitter 5.000 dollara ef einhver þeirra gæti fært honum lokk og hársekk af höfði Hillary Clinton. 14. september 2017 10:32 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Seldu einstaka plötu „hataðasta manns internetsins“ Búið er að selja einstaka plötu Wu-Tang Clan sem var áður í eigu manns sem var á árum áður kallaður „hataðasti maður internetsins. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í dag að platan hefði verið seld en ekki fylgdi tilkynningunni hver hefði keypt plötuna né hver verðmiðinn hefði verið. 27. júlí 2021 22:49
„Hataðasti maður internetsins“ brast í grát og dæmdur í sjö ára fangelsi Shkreli sveik fé úr fjárfestum tveggja sjóða sem hann stofnaði. 9. mars 2018 19:50
Shkreli í steininn fyrir tíst um Hillary Clinton Fjárfestirinn sem ávann sér almannahatur þegar hann stórhækkaði verð á alnæmislyfi bauð fylgjendum sínum á Twitter 5.000 dollara ef einhver þeirra gæti fært honum lokk og hársekk af höfði Hillary Clinton. 14. september 2017 10:32