Körfubolti

Sjötti sigur Suns í röð | Middleton og Holiday fóru fyrir Milwaukee í fjarveru Giannis

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Khris Middleton og Jrue Holiday voru allt í öllu í sóknarleik Milwaukee Bucks í nótt.
Khris Middleton og Jrue Holiday voru allt í öllu í sóknarleik Milwaukee Bucks í nótt. Michael Reaves/Getty Images

Phoenix Suns er nú með góða forystu á toppi Vesturdeildar NBA eftir sjötta sigur liðsins í röð í nótt. Liðið lagði Indiana Pacers 113-103. Þá vann Milwaukee Bucks góðan sex stiga sigur gegn Sacramento Kings í fjarveru Giannis Antetokounmpo 133-127.

Nokkuð jafnræði var með liðunum er Phoenix Suns tók á móti Indiana Pacers í nótt. Gestirnir leiddu með einu stigi að loknum fyrsta leikhluta, en heimamenn fóru með fimm stiga forskot inn í hálfleikinn.

Phoenix-liðið mætti ákveðið til leiks í síðari hálfleikinn og jók forskot sitt í 18 stig áður en komið var að lokaleikhlutanum. Það gaf þeim smá andrými og þrátt fyrir að gestirnir hafi verið sterkari aðilinn á lokakaflanum kom það ekki í veg fyrir góðan tíu stiga sigur heimamanna, 113-103.

Mikal Bridges var stigahæstur í liði Phoenix Suns með 23 stig. Þá átti liðsfélagi hans, Chris Paul, einnig góðan leik, en hann skoraði 18 stig, tók fjögur fráköst og gaf 16 stoðsendingar, ásamt því að stela boltanum fjórum sinnum.

Í leik Milwaukee Bucks og Sacramento Kings voru það Khris Middleton og Jrue Holiday sem stjórnuðu sýningunni í sigri Milwaukee. Saman skoruðu þeir 60 stig og sáu til þess að liðið vann góðan sex stiga sigur, 133-127.

Middleton var stigahæsti maður vallarins með 34 stig og Holiday hjálpaði liðinu með því að koma 26 stigum á töfluna. Í liði Sacramento Kings var Harrison Barnes atkvæðamestur með 29 stig.

Úrslit næturinnar

Sacramento Kings 127-133 Milwaukee Bucks

Oklahoma City Thunder 87-94 Cleveland Cavaliers

Indiana Pacers 103-113 Phoenix Suns

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×