Rússar sagðir hafa áhyggjur af framferði hermanna sinna í Maríupól Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2022 10:02 Rússneskirhermenn í Maríupól. AP Rússneskir embættismenn eru sagðir hafa áhyggjur af því að hersveitir Rússa í Maríupól hafi og séu að fara verulega illa með íbúa borgarinnar. Það muni gera Rússum erfiðara að kveða niður mótspyrnu í borginni og koma niður á áróðri þeirra um að Rússar hafi frelsað borgin.
Þetta segja bandarískir embættismenn sem segjast hafa komið höndum yfir leynilegar upplýsingar sem bendi til þessa. Meðal annars hafi hermenn barið og pyntað fólk og farið ránshendi um borgina, samkvæmt því sem AP fréttaveitan hefur eftir ónafngreindum bandarískum embættismanni. Rússar hófu snemma í innrás þeirra í Úkraínu umsátur um borgina og gerðu umfangsmiklar stórskotaliðsárásir á hana. Á þeim tæpu þremur mánuðum sem bardagar hafa staðið yfir hafa Rússar verið sakaðir um að valda gífurlegu mannfalli meðal almennra borgara. Þann 9. mars gerðu Rússar loftárás á fæðingardeild á sjúkrahúsi í Maríupól sem vakti athygli um heim allan. Sjá einnig: Segir Rússa hafa rænt áhrifavaldinum sem lifði af árásina á fæðingarspítalann Um það bil viku síður sprengdu þeir sögufrægt leikhús í borginni sem íbúar notuðu sem sprengjuskýli. Allt að sex hundruð manns dóu í þeirri árás. Sjá einnig: Rússneska sendiráðið gagnrýnir íslenska fjölmiðla vegna umfjöllunar um Úkraínu Sömuleiðis standa Rússar frammi fyrir trúverðugum ásökunum um ýmis ódæði og jafnvel stríðsglæpi í norðurhluta Úkraínu, eins og í Bucha og víðar, þar sem rússneskir hermenn hafa verið sakaðir um að myrða almenna borgara í massavís. Úkraínskir hermenn hafa staðið í hárinu á hersveitum Rússa en síðustu verjendur borgarinnar halda nú til í Azovstal-verksmiðjunni og hafa verið umkringdir þar í nokkrar vikur. Einhverjir þeirra hafa gefist upp á síðustu dögum en óljóst er hve margir. Þá er óljóst hvað verður um þá en Úkraínumenn hafa sagt að til standi að halda fangaskipti en Rússar hafa gefið til kynna að það standi ekki til. Þess í stað eigi að rétta yfir hermönnunum, eða allavega einhverjum þeirra, og mögulega taka af lífi.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Bandaríkin Tengdar fréttir Erdogan vill fá „hryðjuverkamenn“ afhenta gegn samþykki fyrir aðild Reuters greinir nú frá því að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi gefið út hvað hann vill fá gegn því að samþykkja aðild Finna og Svía að Atlantshafsbandalaginu. 18. maí 2022 11:37 Vaktin: Borubrattir Rússar segja fall Maríupól marka þáttaskil Svíar og Finnar hafa skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu.„Finnland og Svíþjóð hafa komist að samkomulagi að fara í ferlið hönd í hönd og á morgun skilum við umsóknunum inn saman,“ sagði Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á fundi með forseta Finnlands í gær. 18. maí 2022 06:43 Grátbiðja um aðstoð í stálverinu í Maríupól Á myndbandi sem tekið er upp í stálverinu í Maríupól, sem rússneskar hersveitir hafa setið um síðustu daga, grátbiður fólk um aðstoð og segir krafta þess brátt á þrotum. 23. apríl 2022 15:18 Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði. 7. apríl 2022 23:40 Meint raunasaga úkraínskrar flóttakonu tekin upp af leyniþjónustu Rússlands Ríkismiðlar Rússlands birtu nýverið myndband af úkraínskri flóttakonu frá Marípuól þar sem hún sagði Azov-herdeildina umdeildu og aðra úkraínska hermenn hafa framið umfangsmikla stríðsglæpi í borginni. Hún sagði úkraínska hermenn hafa myrt íbúa og skýlt sér bakvið þá. 30. mars 2022 11:51 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fleiri fréttir Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum Sjá meira
Erdogan vill fá „hryðjuverkamenn“ afhenta gegn samþykki fyrir aðild Reuters greinir nú frá því að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi gefið út hvað hann vill fá gegn því að samþykkja aðild Finna og Svía að Atlantshafsbandalaginu. 18. maí 2022 11:37
Vaktin: Borubrattir Rússar segja fall Maríupól marka þáttaskil Svíar og Finnar hafa skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu.„Finnland og Svíþjóð hafa komist að samkomulagi að fara í ferlið hönd í hönd og á morgun skilum við umsóknunum inn saman,“ sagði Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á fundi með forseta Finnlands í gær. 18. maí 2022 06:43
Grátbiðja um aðstoð í stálverinu í Maríupól Á myndbandi sem tekið er upp í stálverinu í Maríupól, sem rússneskar hersveitir hafa setið um síðustu daga, grátbiður fólk um aðstoð og segir krafta þess brátt á þrotum. 23. apríl 2022 15:18
Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði. 7. apríl 2022 23:40
Meint raunasaga úkraínskrar flóttakonu tekin upp af leyniþjónustu Rússlands Ríkismiðlar Rússlands birtu nýverið myndband af úkraínskri flóttakonu frá Marípuól þar sem hún sagði Azov-herdeildina umdeildu og aðra úkraínska hermenn hafa framið umfangsmikla stríðsglæpi í borginni. Hún sagði úkraínska hermenn hafa myrt íbúa og skýlt sér bakvið þá. 30. mars 2022 11:51