Enski boltinn

Lampard vill sjá ensku úr­vals­deildina henda há­degis­leik­tímanum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Frank Lampard á blaðamannafundi dagsins.
Frank Lampard á blaðamannafundi dagsins. Darren Walsh/Getty

Frank Lampard, stjóri Chelsea, er ekki par hrifinn af því að vera spila í hádeginu á laugardegi eftir landsleikjaviku.

Chelsea spilar gegn Newcastle á laugardaginn klukkan 12.30 en nokkrir leikmenn Chelsea snúa ekki aftur til Englands fyrr en í kvöld.

„Þetta er ekki það besta. Þessi 12.30 tímasetning, hversu oft þarf hún að vera þarna?“ sagði hann í samtali við fjölmiðla fyrir leik helgarinnar.

„Þetta er ekki besta leiðin til þess að undirbúa þig fyrir leik. Þú vilt það besta fyrir merkið. Ég vil að við spilum sem best en þetta eru erfiðarar kringumstæður.“

„Því miður eru sumir leikmanna okkar að snúa aftur til baka í kvöld svo að byrja spila 12.30 er meiri áskorun,“ sagði Lampard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×