49 þúsund lífeyrisþegar í skuld við tryggingarnar

Tryggingastofnun er að endurbæta upplýsingakerfið.
Tryggingastofnun er að endurbæta upplýsingakerfið. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Miklu fleiri lífeyrisþegar fengu ofgreiddan lífeyri á síðasta ári en á árinu á undan og þurfa því að endurgreiða. 49 þúsund manns eru í skuld við Tryggingastofnun við uppgjör ársins og samanburð við skattframtöl. Meðaltal skulda er 164 þúsund krónur. Endurgreiðslurnar hefjast 1. september í haust og er hægt að dreifa þeim á tólf mánuði.

Rúmlega 17% lífeyrisþega, 12 þúsund einstaklingar, eru svo heppin að eiga inneign hjá Tryggingastofnun og er meðaltalið 215 þúsund á mann.

Þeir sem þurfa að endurgreiða eru 74% allra lífeyrisþega en á árinu á undan var sama hlutfall 51%. Fjölgunin er, samkvæmt upplýsingum Tryggingastofnunar, einkum rakin til hás verðbólgu- og vaxtastigs sem hefur haft áhrif á lífeyrissjóðsgreiðslur og fjármagnstekjur.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert