Með yfir 100 leiki í ensku úrvalsdeildinni og spilar með Fram í sumar Sindri Sverrisson skrifar 4. maí 2021 09:51 Danny Guthrie hefur skrifað undir samning við Fram. Hann er ekki mættur til landsins Framarar létu það ekki stöðva sig í að teikna hann upp í Frambúning. mynd/Fram Danny Guthrie, fyrrverandi leikmaður Newcastle og fleiri liða, er búinn að semja við knattspyrnudeild Fram um að leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Þetta verða að teljast afar merkileg tíðindi en Guthrie á að baki yfir 100 leiki í ensku úrvalsdeildinni og um 150 leiki í næstefstu deild Englands. Guthrie er 34 ára gamall miðjumaður og þekktastur fyrir tíma sinn hjá Newcastle og Reading. Hann er hins vegar uppalinn hjá Manchester United og Liverpool. Guthrie kemur til Íslands í vikunni og fer í sóttkví en hefur svo æfingar í Safamýrinni. „Kom óvænt upp“ Guthrie lék síðast með liði Walsall í ensku D-deildinni og spilaði þar 13 leiki fyrir áramót. Síðasti leikur hans var í janúar. Hann hefur einnig leikið með Blackburn, Fulham, Reading, Bolton, Southampton og Liverpool þar sem hann hóf atvinnumannssferil sinn. „Þetta mál kom óvænt upp á borð hjá okkur og þótti okkur þetta vera mjög spennandi kostur,“ segir Jón Sveinsson, þjálfari Framara. „Það var erfitt að sleppa þessu tækifæri og við vonumst til að hann með sína reynslu og karakter komi sterkur inn í öflugan hóp. Ég efast ekki um að hann muni ýta mönnum upp á tærnar og vera góð viðbót við gott lið. FRAMtíðin mun leiða það í ljós,“ segir Jón í fréttatilkynningunni. Guthrie segir í fréttatilkynningunni: „Ég er í skýjunum með að ganga til liðs við Fram, félag með stórkostlega sögu. Ég get ekki beðið eftir því að komast til Íslands, hitta þjálfarann minn og nýju liðsfélagana, og leggja hart að mér til að komast í gott form og byrja að spila og vinna leiki.“
Fram Lengjudeildin Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Fleiri fréttir Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Víkingar fengu góða sumargjöf Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Sjá meira