Hvalbátarnir rákust saman þegar dráttarbátur reyndist of kraftlítill Kristján Már Unnarsson skrifar 22. júní 2022 17:56 Hvalur 9 rekst á Hval 8. Þar um borð tókst mönnum á síðustu stundu að koma dekki upp á rekkverkið til að hindra skemmdir. Egill Aðalsteinsson Neyðarleg uppákoma varð í Reykjavíkurhöfn í dag þegar hvalbátar Hvals hf. voru að leggja frá bryggju til hvalveiða. Dráttarbátur Faxaflóahafna réð ekki við það verkefni að draga fyrri hvalbátinn, Hval 9, frá hinum bátnum, Hval 8, og missti hann frá sér. Það varð til þess að Hvalur 9 rakst bæði utan í Hval 8 sem og skuttogarann Sigurborgu SH.
Dráttarbáturinn Leynir búinn að missa Hval 9 utan í Hval 8.Egill Aðalsteinsson Það var í hádeginu sem fjöldi fólks mætti á Ægisgarð til að fylgjast með upphafi hvalvertíðar eftir nærri fjögurra ára hlé á hvalveiðum. Byrjað var á því að losa landfestar Hvals 9 sem lá utan á Hval 8. Upphafið reyndist þó vandræðalegt því dráttarbáturinn Leynir, sem Faxaflóahafnir sendu í það verkefni að draga bátana frá bryggju, reyndist of kraftlítill. Í vestangjólu, sem kom þvert á Hval 9, skorti dráttarbátinn afl til að draga hvalbátinn frá. Hvalur 9 rakst einnig með skutinn utan í togarann Sigurborgu SH.Egill Aðalsteinsson Þetta varð til þess að hann missti hvalbátinn frá sér og rak hann hratt í átt að Hval 8. Þar um borð voru menn snöggir til, sáu í hvað stefndi, og náðu að koma dekki á rekkverkið til að hindra skemmdir. Hvalur 9 rakst einnig utan í skuttogarann Sigurborgu SH frá Grundarfirði, sem lá við Ægisgarð fyrir aftan hvalbátana. Dráttarbáturinn Haki búinn að bjarga málum.Egill Aðalsteinsson Engar sjáanlegir skemmdir urðu á skipunum. Öflugri dráttarbátur var svo fenginn á vettvang, Haki, og náði hann að koma hvalbátunum frá bryggju svo þeir gætu siglt til hvalveiða. Myndskeið af árekstrinum, sem og frá brottför skipanna, var sýnt í fréttum Stöðvar 2, og rætt við Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf. Egill Aðalsteinsson kvikmyndar brottför hvalbátanna í dag. Myndirnar voru sýndar í fréttum Stöðvar 2.KMU
Hvalveiðar Reykjavík Sjávarútvegur Tengdar fréttir Hvalveiðimenn gera klárt til að hefja hvalvertíð á morgun Stefnt er að því að hvalveiðiskip Hvals hf. hefji hvalvertíð á morgun, þá fyrstu í fjögur ár. Áhafnir hvalbátanna Hvals 8 og Hvals 9 voru í óðaönn í dag að undirbúa brottför. 21. júní 2022 21:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Sjá meira
Hvalveiðimenn gera klárt til að hefja hvalvertíð á morgun Stefnt er að því að hvalveiðiskip Hvals hf. hefji hvalvertíð á morgun, þá fyrstu í fjögur ár. Áhafnir hvalbátanna Hvals 8 og Hvals 9 voru í óðaönn í dag að undirbúa brottför. 21. júní 2022 21:30