Smit hjá karlaliði Þórs

Frá leik Þórs og Keflavíkur í sumar.
Frá leik Þórs og Keflavíkur í sumar. Ljósmynd/Þórir

Kórónuveirusmit hefur greinst í karlaliði Þórs í fótbolta. Eru því bæði karlalið Þórs og kvennalið Þórs/KA í sóttkví en smit greindist hjá leikmanni kvennaliðsins í fyrrakvöld. 

Var kvennaliðið skimað í gær og komu ekki fleiri smit í ljós. Verða bæði lið skimuð á ný á föstudag, en bæði lið æfðu síðastliðinn föstudag. 

Æfingar íþróttaliða utan höfuðborgarsvæðisins hafa verið leyfilegar með eðlilegum hætti en æfingar innan höfuðborgarsvæðisins með takmörkunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert