Gríðarlegt tjón í tugum íbúða eftir fordæmalausa rafmagnsbilun Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 27. september 2022 12:44 Mismiklar skemmdir urðu eftir íbúðum við Holtsveg í Urriðaholti. vísir/vilhelm Margra milljóna króna tjón varð í tæplega hundrað íbúðum í Urriðaholti á föstudag þegar bilun kom í rafmagnsgötukassa og allt of há spenna komst inn á íbúðirnar. Gríðarlegur fjöldi heimilistækja skemmdist og dæmi eru um að lyftur í stigagöngum séu óvirkar.
Bilunin kom upp í kassanum síðdegis á föstudaginn. Íbúar í fjölda íbúða við Holtsveg urðu þá fyrst varir við truflanir í ljósum á heimilum sínum en stuttu síðar fóru raftæki að gefa sig. HS Veitur halda úti rafmagnskassanum sem bilaði en forstjórinn segir þetta í fyrsta skipti sem þeir sjá eitthvað sem þetta gerast. Kerfið í Urriðaholtinu er öðruvísi en annars staðar að ósk byggingaraðila þar. „Við höfum ekki lent í þessu áður og eins og ég segi, þetta er greinilega viðkvæmara með þessari útfærslu heldur en annars staðar, sem eitthvað þarf að kíkja á,“ segir Júlíus Jón Jónsson, forstjóri HS Veitna. vísir/HS Veitur Verið er að skoða hvað hægt sé að gera til að tryggja kerfið betur. Einn íbúi á Holtsvegi lýsti því í samtali við fréttastofu hvernig hann hefði orðið fyrir talsverðu tjóni vegna bilunarinnar. Nokkur heimilistæki hefðu skemmst og lyftan í stigagangi hans orðin óvirk. Hið sama væri uppi hjá mörgum öðrum í götunni, sumir meta tjónið á um milljón krónur en tæki eins og ísskápar, þvottavélar, sjónvörp og tölvur hafa skemmst. HS Veitum hefur borist fjöldi kvartana. „Þær eru að koma inn núna bara "by the minute" svona stöðugt að berast inn. Og ég reikna með að það geti verið um áttatíu til níutíu íbúðir án þess að við vitum það. Við vitum að það voru 118 íbúðir tengdar þessu og svo náttúrulega sameignir og svona þess utan,“ segir Júlíus. Hann getur ekki skotið á hvert heildartjónið sé en mun funda síðar í dag með tryggingarfélagi Veitna um næstu skref. Bilunin hafi ekki verið hættuleg fyrir fólk. „Hún á ekki að vera það. En það getur alltaf verið eitthvað svona frík dæmi en það á ekki að vera það,“ segir Júlíus.
Garðabær Orkumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Innlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent