Fótbolti

Með ósanngjarnt forskot í baráttunni við Ísland?

Sindri Sverrisson skrifar
Ísland á eftir útileiki við Slóvakíu og Ungverjaland í undankeppninni, og svo hugsanlega umspil í apríl.
Ísland á eftir útileiki við Slóvakíu og Ungverjaland í undankeppninni, og svo hugsanlega umspil í apríl. vísir/vilhelm

Nú er ljóst að úrslit í öðrum riðlum undankeppni EM kvenna í fótbolta ráða miklu um möguleika Íslands á að komast á lokamótið í Englandi.

Eftir tap Íslands gegn Svíþjóð í gær hafa Svíar tryggt sér efsta sæti F-riðils og farseðilinn til Englands. Það hafa Norðmenn, Danir, Hollendingar og Þjóðverjar einnig gert, sem og auðvitað ensku gestgjafarnir.

Sænska landsliðið var klárt með EM-borðann eftir sigurinn á Íslandi í gær.Instagram/@asllani9

Sex þjóðir eru því komnar á EM en tíu sæti eru enn laus. Ísland berst nú um að ná einu þeirra. Ísland á eftir útileiki við Slóvakíu og Ungverjaland eftir mánuð. Slóvakar geta enn náð 2. sæti af Íslandi en þurfa þá væntanlega að vinna Ísland og Svíþjóð í lokaleikjum sínum.

Leikið er í níu undanriðlum og komast þrjú lið með bestan árangur í 2. sæti beint á EM, en sex lið fara í umspil. Misjafnt er hve mikið hefur verið spilað í riðlunum en stöðuna í baráttunni um þrjú örugg sæti á EM má sjá hér að neðan:

Liðin í 2. sæti í undanriðlunum níu. Þrjú lið með bestan árangur komast beint á EM en hin sex fara í umspil. Ísland er í 5. sæti sem stendur en hefur það fram yfir mörg hinna liðanna að hafa lokið báðum leikjum sínum við besta lið riðilsins.Wikipedia

Hafa ber í huga að Ísland hefur lokið báðum leikjunum við besta lið síns riðils, Svíþjóð, og það að hafa náð í eitt stig úr þeim leikjum gæti reynst gulls ígildi í baráttunni við aðra riðla.

Liðin í einum riðli vita lokastöðuna í öðrum riðlum

Undankeppninni lýkur nánast allri 1. desember en þá er ekki víst að örlög Íslands verði ráðin. Liðin í E-riðli ljúka nefnilega ekki sinni keppni fyrr en í febrúar. Þau urðu sammála um að fresta leikjum sem áttu að vera í september, vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á leikform leikmanna, og UEFA gaf leyfi fyrir frestuninni.

Í E-riðli eru Finnar nú efstir en Portúgalar og Skotar einnig í harðri baráttu um efstu tvö sætin. Það hjálpar Íslandi að þrjú góð lið geti þarna tekið stig hvert af öðru, en það gæti sem sagt verið að það skýrist ekki fyrr en í febrúar hvaða þrjú lið fara beint á EM með bestan árangur í 2. sæti.

Finnland, Portúgal og Skotland munu því vita fyrir lokaleiki sína hvaða árangur dugar liði í 2. sæti til að komast beint á EM. Finnar gætu til að mynda vitað hversu mörg mörk þeir þyrftu að skora gegn botnliði Kýpverja í lokaumferðinni.

Umspilið í apríl

Verði Ísland í hópi þeirra sex þjóða sem enda í 2. sæti síns riðils en þurfa að fara í umspil, mun liðið leika í því umspili 5.-13. apríl næstkomandi. Leikin verða þrjú einvígi, með leikjum heima og að heiman, og kemst sigurvegari hvers einvígis á EM sem fram fer í Englandi sumarið 2022.


Tengdar fréttir

„Vorum of ragar að taka í gikkinn“

Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari Íslands, sagðist svekktur eftir 2-0 tap íslenska landsliðsins gegn Svíþjóð í undankeppni EM 2021 sem fer fram í Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×