Svindlbrigslari ákærður fyrir að skila atkvæði látinnar eiginkonu Þorgils Jónsson skrifar 22. október 2021 16:22 Frá kjörstað í Las Vegas. Maður einn í Nevada-ríki hefur verið ákærður fyrir að senda inn kjörseðil í nafni látinnar eiginkonu sinnar. Hann hafði áður vakið athygli á að atkvæðinu hafði verið skilað og þóttist ekki kannast við neitt. Bandaríkjamaður á miðjum aldri, búsettur í Nevada, hefur verið ákærður fyrir kosningasvindl í síðustu forsetakosningum. Hann er talinn hafa sent inn utankjörstaðaratkvæði í nafni konu sinnar, sem lést árið 2017. Þetta myndi vart heyra til almennra tíðinda ef ekki væri fyrir þá forsögu að umræddur maður, Donald Hartle að nafni, er repúblikani og steig sjálfur fram eftir kosningar og benti á að kosið hefði verið í nafni konu hans. Þótti honum það til merkis um að fréttaflutningur ýmissa miðla um víðtækt kosningamisferli gæti átt við rök að styðjast. Frá þessu segir á vef Newsweek. Hann sagði að kjörseðill eiginkonunnar hafi aldrei borist heim til þeirra og hann grunaði ekki hvernig meintir svindlarar hefðu komist yfir gögnin. #BREAKING: Las Vegas man who claimed his dead wife’s mail-in ballot showed voter fraud is accused of sending it in himself and voting twice, investigators confirm. Donald "Kirk" Hartle faces two charges relating to the 2020 election. His wife died from cancer in 2017. #8NN pic.twitter.com/gZrrlpVV1O— David Charns (@davidcharns) October 21, 2021 „Það setur að manni óhug, svo ég segi eins og mér finnst“ sagði Hartle þá. „Ég skil ekki hvernig þetta gerist, en þetta styður við margt að því sem maður hefur verið að heyra í fjölmiðlum, um hvað er mögulegt í þessum efnum og nú velti ég bara fyrir mér hversu djúpstætt þetta er.“ How it started: How it s going: pic.twitter.com/1K23J3Mo8c— Molly Forgey (@mbforgey) October 21, 2021 Vararíkisstjóri Texasríkis, Repúblikaninn Dan Patrick, tók Trump forseta á orðinu og lofaði hverjum þeim sem benti á tilfelli um kosningasvindl, peningaverðlaun upp á 25.000 dali hið minnsta. „Ég styð Trump forseta í viðleitni hans til að fletta ofan af kosningasvindli í forsetakosningunum og ganga úr skugga um að öll lögleg atkvæði séu talin og öllum ólöglegum vísað frá“ sagði hann í tísti rétt eftir kosningarnar. Nú segir frá í New York Times, tæpu ári síðar, að Patrick hafi þurft að punga út einni slíkri þóknun, en ekki til flokkssystkinis síns, heldur demókrata sem tilkynnti repúblikana einn sem var nýlega sakfelldur fyrir að skila atkvæðisseðli sonar síns til viðbótar við sitt eigið. Ýkjur og órökstuddar ásakanir Donald Trump tapaði fyrir Joe Biden í forsetakjörinu, en kenndi því um að Demókratar hefðu stundað kerfisbundið svindl sem hefði kostað hann sigurinn. Taldi hann upp í því sambandi ýmis ríki þar sem tæpt var á munum, þar á meðal Nevada. Hann kærði úrslit kosninganna í fjölmörgum ríkjum, en dómstólar vísuðu öllum kærum frá þar sem engin sönnungargögn voru dregin fram málinu til stuðnings. Repúblikanaflokkurinn í Nevada stökk á mál Hartles í upphafi og benti kosningayfirvöldum á nöfn 1.506 látinna einstaklinga sem áttu að hafa greitt atkvæði í kosningunum. Við skoðun kom í ljós að allir einstaklingarnir væru sannarlega á lífi utan tíu nafna, sem könnuð voru frekar. Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Sjá meira
Þetta myndi vart heyra til almennra tíðinda ef ekki væri fyrir þá forsögu að umræddur maður, Donald Hartle að nafni, er repúblikani og steig sjálfur fram eftir kosningar og benti á að kosið hefði verið í nafni konu hans. Þótti honum það til merkis um að fréttaflutningur ýmissa miðla um víðtækt kosningamisferli gæti átt við rök að styðjast. Frá þessu segir á vef Newsweek. Hann sagði að kjörseðill eiginkonunnar hafi aldrei borist heim til þeirra og hann grunaði ekki hvernig meintir svindlarar hefðu komist yfir gögnin. #BREAKING: Las Vegas man who claimed his dead wife’s mail-in ballot showed voter fraud is accused of sending it in himself and voting twice, investigators confirm. Donald "Kirk" Hartle faces two charges relating to the 2020 election. His wife died from cancer in 2017. #8NN pic.twitter.com/gZrrlpVV1O— David Charns (@davidcharns) October 21, 2021 „Það setur að manni óhug, svo ég segi eins og mér finnst“ sagði Hartle þá. „Ég skil ekki hvernig þetta gerist, en þetta styður við margt að því sem maður hefur verið að heyra í fjölmiðlum, um hvað er mögulegt í þessum efnum og nú velti ég bara fyrir mér hversu djúpstætt þetta er.“ How it started: How it s going: pic.twitter.com/1K23J3Mo8c— Molly Forgey (@mbforgey) October 21, 2021 Vararíkisstjóri Texasríkis, Repúblikaninn Dan Patrick, tók Trump forseta á orðinu og lofaði hverjum þeim sem benti á tilfelli um kosningasvindl, peningaverðlaun upp á 25.000 dali hið minnsta. „Ég styð Trump forseta í viðleitni hans til að fletta ofan af kosningasvindli í forsetakosningunum og ganga úr skugga um að öll lögleg atkvæði séu talin og öllum ólöglegum vísað frá“ sagði hann í tísti rétt eftir kosningarnar. Nú segir frá í New York Times, tæpu ári síðar, að Patrick hafi þurft að punga út einni slíkri þóknun, en ekki til flokkssystkinis síns, heldur demókrata sem tilkynnti repúblikana einn sem var nýlega sakfelldur fyrir að skila atkvæðisseðli sonar síns til viðbótar við sitt eigið. Ýkjur og órökstuddar ásakanir Donald Trump tapaði fyrir Joe Biden í forsetakjörinu, en kenndi því um að Demókratar hefðu stundað kerfisbundið svindl sem hefði kostað hann sigurinn. Taldi hann upp í því sambandi ýmis ríki þar sem tæpt var á munum, þar á meðal Nevada. Hann kærði úrslit kosninganna í fjölmörgum ríkjum, en dómstólar vísuðu öllum kærum frá þar sem engin sönnungargögn voru dregin fram málinu til stuðnings. Repúblikanaflokkurinn í Nevada stökk á mál Hartles í upphafi og benti kosningayfirvöldum á nöfn 1.506 látinna einstaklinga sem áttu að hafa greitt atkvæði í kosningunum. Við skoðun kom í ljós að allir einstaklingarnir væru sannarlega á lífi utan tíu nafna, sem könnuð voru frekar.
Vararíkisstjóri Texasríkis, Repúblikaninn Dan Patrick, tók Trump forseta á orðinu og lofaði hverjum þeim sem benti á tilfelli um kosningasvindl, peningaverðlaun upp á 25.000 dali hið minnsta. „Ég styð Trump forseta í viðleitni hans til að fletta ofan af kosningasvindli í forsetakosningunum og ganga úr skugga um að öll lögleg atkvæði séu talin og öllum ólöglegum vísað frá“ sagði hann í tísti rétt eftir kosningarnar. Nú segir frá í New York Times, tæpu ári síðar, að Patrick hafi þurft að punga út einni slíkri þóknun, en ekki til flokkssystkinis síns, heldur demókrata sem tilkynnti repúblikana einn sem var nýlega sakfelldur fyrir að skila atkvæðisseðli sonar síns til viðbótar við sitt eigið.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Sjá meira