Heilsa og hagsýni í forgangi í Meistaramánuði í ár Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 14. október 2021 16:01 Fyrirlesararnir sem taka þátt í Meistaramánuði í ár. Samsett Nú er Meistaramánuður hafinn og er fólk þá hvatt til að setja sér markmið, stór eða smá. Nú þegar hafa yfir tvöþúsund einstaklingar skráð sig til leiks í ár en allir geta tekið þátt og er ekki of seint að skrá sig.
Skráningin fer fram á vefnum meistaramanudur.is. „Markmiðin sem fólk hafa sett sér eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg en þó snúa mörg þeirra snúa að heilsu, hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl almennt. Þá eru margir sem hafa sett sér markmið um hagstæðari matarinnkaup, skipulag og auknar samverustundir með fjölskyldunni,“ segir í tilkynningu um átakið. Öll þau sem skrá sig fá aðgang að rafrænni fyrirlestraröð átaksins. Nú þegar hefur birst á síðu Meistaramánaðar fyrirlestur Aldísar Örnu Tryggvadóttur, streituráðgjafa og markþjálfa hjá Heilsuvernd, þar sem fjallað er um streitu, markmiðasetningu og vellíðunarstjórnun. „Að sögn Aldísar er mikilvægt að fólk sé „sinn eigin félagsmálaráðherra“, það hlúi vel að félagslegri heilsu og samskiptahæfni þar sem samskipti séu stór streituvaldur í lífinu. Hún segir að ef mannfólkið myndi bæta samskiptahæfni um tíu prósent þá myndu sparast að minnsta kosti 3.750 milljarðar bandaríkjadollarar á ári því tíu sinnum þessi upphæð er það sem streita kostar bara í Bandaríkjunum, samkvæmt rannsóknum.“ Aldís fer í fyrirlestri sínum einnig yfir hvernig eigi að vera „sinn eigin gleðimálaráðherra“ og fjölga hamingjustundum því eitt besta mótefnið gegn streitu sé að gera það sem við elskum. Vellíðan sé forsenda velgengni á öllum sviðum lífsins og fyrir hverja eina einingu sem maður ver í eitthvað sem lætur manni líða vel, fær maður áttfalt til baka. „Þá verða fyrirlestrar frá Begga Ólafs þjálfunarsálfræðingi og Erlu Björnsdóttur svefnráðgjafa síðar í mánuðinum. Þar að auki geta þátttakendur nálgast markmiðadagatal á síðunni, fengið margs konar heilræði frá sérfræðingum og inneign í Samkaupa-appinu. Þau sem taka þátt í Meistaramánuði eru hvött til að deila myndum og sögum á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #meistari.“
Heilsa Meistaramánuður Svefn Mest lesið Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Bíó og sjónvarp Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Lífið Gæsahúð og allur tilfinningaskalinn á forsýningu Mari Bíó og sjónvarp Disneydraumurinn varð loks að veruleika Lífið Maikai-hjónin eignuðust stúlku Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Lífið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Makamál Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Lífið Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Lífið Fleiri fréttir Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Baldurs og Felix-fáni falur Menningarunnendur nutu veðurblíðunnar í miðborginni Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Allt það besta úr þáttaröðinni Öll þessi ár Fyrstu kaupendur hafi þessi atriði í huga Rikki G svaraði kallinu og lét draum Ólafs Jóhanns rætast Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Ósáttir karlar flautuðu á Fríðu Dulin blessun að missa Baðhúsið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Vandamálaráðuneytið únefndi hinn fimmtán ára Viðar til sigurs Sjá meira