Kauphöllin tútnar út í einhverri mestu efnahagskreppu sem sést hefur Jakob Bjarnar skrifar 7. apríl 2021 12:33 Hverjum klukkan glymur. Verð hlutabréfa hefur hækkað mjög yfir páskana. vísir/vilhelm Hlutabréf í Kauphöllinni hækkað um 50 milljarða króna í dymbliviku.
Gunnar Smári Egilsson hugmyndafræðingur Sósíalistaflokksins skoðaði þetta sérstaklega og hefur til marks um galna efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar. Þetta hafi gerst meðan þjóðin svaf, át súkkulaði og reifst um sóttvarnarhótel. „Kauphöllin blæs því út í miðri efnahagslegri niðursveiflu, heimsfaraldri og met atvinnuleysi. Það er ekkert að frétta af fjárfestingum einkafyrirtækja og opinber fjárfesting dregst saman. Það eina sem hreyfist er verðmiðinn á gömlum eignum. Engin ný störf hafa verið búin til tólf mánuðum eftir að kreppan skall á. Þetta er efnahagsstefna sem hefur það eitt markmið að verja eignir hinna ríku,“ segir Gunnar Smári. Hagur hinna ríku í fyrirrúmi Í samtali við Vísi segist Gunnar Smári byggja útreikninga sína á opinberum upplýsingum; hann margfaldar hlutabréfin með genginu og ber saman við stöðuna fyrir tæpum tveimur vikum og í ársbyrjun 2020. Þetta megi sjá hér á vef Nasdaq yfir stöðuna í norðri. Ef ýtt er á hvert félag má sjá söguna og þróun virðis. Gunnar Smári velkist ekki í vafa um að allt kerfið vinnur fyrst og síðast að hag hinna ríku.vísir/vilhelm „Ég tók svo saman hlut lífeyrissjóða með því að skoða tuttugu stærstu í hverju félagi, en það má finna á vef hvers fyrirtækis,“ segir Gunnar Smári. 50 milljarðar króna jafngilda um 3 prósenta hækkun á virði hlutabréfanna á tæpum hálfum mánuði. Sem Gunnar Smári segir fullkomlega galið. „Til að verja hagnað hinna ríku mun ríkisstjórnin setja á lög um skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa. Það er gert þegar kauphöllin hefur bólgnað svo mjög að allir vita að blaðran mun springa. Til að ná út hagnaði sínum þurfa hin ríku að fá almenning til að kaupa hlutabréf og viðhalda bólunni meðan þau læðast út. Þegar þau hafa leyst út gróðann fellur bólan yfir almenning. Samhliða þessu mun Seðlabankinn halda uppi virði krónunnar meðan hin ríku flýja hagkerfið og flytja fé sitt útlanda. Íslenska Kauphöllin.vísir/vilhelm Þegar það er búið mun gengi krónunnar falla yfir almenning,“ segir Gunnar Smári og dregur upp fremur dökka mynd af framtíðinni. Ríkasta fólkið leitar útgönguleiða með hagnaðinn Gunnar Smári segir að frá ársbyrjun 2020, áður en kórónuveirufaraldurinn skall á, hafi virði hlutabréfanna í kauphöllinni hækkað um 483 milljarða króna. „Lífeyrissjóðir eiga um 46 prósent í kauphöllinni svo þeir bókfæra um 220 milljarða af þessari hækkun. Restin, um 260 milljarðar, eru gengishagnaður fjársterkra aðila. Af þeim má áætla að um 200 milljarðar króna tilheyri innlendum aðilum, mest 0,1 prósent ríkasta fólkinu sem hefur auðgast enn meira í kórónafaraldrinum. Það fólk er nú að leita að útleið fyrir þetta fé. Það ætlar ekki að brenna inni þegar bólan springur. Og það á og rekur ríkisstjórnina til að tryggja hagsmuni sína.“
Alþingiskosningar 2021 Verðlag Íslenska krónan Markaðir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Aukið öryggi í bílaviðskiptum á netinu – Bland og Frágangur í samstarf Samstarf Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Fleiri fréttir Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Sjá meira