Viðskipti innlent

Stefndi í metár hjá Hörpu en töpuðu í staðinn 200 milljónum

Snorri Másson skrifar
Þrátt fyrir faraldurinn voru haldnir 512 viðburðir í Hörpu árið 2020 samanborið við 1.303 árið 2019.
Þrátt fyrir faraldurinn voru haldnir 512 viðburðir í Hörpu árið 2020 samanborið við 1.303 árið 2019. Vísir/Vilhelm

Tónlistarhúsið Harpa tapaði tæplega 200 milljónum á árinu, jafnvel þótt stefnt hafi í metár á sviði alþjóðlegs ráðstefnuhalds. Eins og gefur að skilja hurfu þær væntingar eins og dögg fyrir sólu þegar kórónuveirufaraldurinn skall á í febrúar á síðasta ári.

Tekjur Hörpu lækkuðu um 56% milli ára, námu 537 milljónum króna á liðnu ári samanborið við tæpar 1.210 milljónir árið 2019.

Íslenska ríkið og Reykjavíkurborg settu 450 milljónir í reksturinn í upphafi árs í formi hefðbundins rekstrarframlags, en viðbótarframlag nam 278 milljónum.

Í tilkynningu segir að gripið hafi verið til afgerandi aðgerða til að mæta stöðunni og að rekstrarkostnaður hafi verið lækkaður um tæp 30%, um 473 milljónir króna.

„Þegar forsendur viðburðahalds og ferðaþjónustu gjörbreyttust til hins verra brast jafnframt rekstrargrundvöllur veitingastaða, verslana og annarra þjónustuaðila í húsinu sem nær allir hættu starfsemi í Hörpu á árinu. Unnið er að samningum við nýja aðila sem koma til með að hefja starfsemi í Hörpu á komandi mánuðum,“ segir í tilkynningu.

Miðasöluvelta dróst saman um milljarð

Þrátt fyrir faraldurinn voru haldnir 512 viðburðir í Hörpu samanborið við 1.303 árið 2019.

Haldnir voru 330 listviðburðir, þ.e. tónleikar, leiksýningar og listsýningar. Þá voru haldnar 141 ráðstefnur, fundir og veislur eða aðeins um þriðjungur samanborið við 411 slíka viðburði á fyrra ári. 

Eigin viðburðir Hörpu voru um 44 og samanstóðu m.a. af streymistónleikum úr Eldborg og fjölskylduviðburðum. Um 65 þúsund aðgöngumiðar voru afgreiddir gegnum miðasölu Hörpu samanborið við um 232 þúsund árið 2019. Heildarvelta miðasölu vegna viðburða nam um 301 milljón króna samanborið við 1.294 milljónir 2019.

Í stjórn Hörpu eiga sæti Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir formaður, Árni Geir Pálsson, Aðalheiður Magnúsdóttir, Arna Schram og Guðni Tómasson. Forstjóri er Svanhildur Konráðsdóttir.


Tengdar fréttir

Harpa aug­lýsir eftir rekstrar­aðilum

Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa auglýsir nú eftir hugmyndum og tillögum að „fersku“ framboði á upplifun, veitingaþjónustu og verslun á jarðhæð hússins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×