Minnst tíu mótmælendur drepnir í Mjanmar Vésteinn Örn Pétursson skrifar 28. febrúar 2021 14:03 Þungvopnuð lögregla handtekur blóðugan mótmælanda. Aung Kyaw Htet/SOPA Images/LightRocket via Getty Lögregla í Mjanmar hefur orðið minnst tíu mótmælendum að bana víða um landið. Harka hefur færst í viðbrögð hersins við mótmælum gegn valdaráni sem framið var í Mjanmar fyrr í mánuðinum. Tugir mótmælenda hafa þá særst.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að lögregla hefði skotið mótmælendur til bana í borgunum Yangon, Dawei og Mandalay. Mótmælendahópar hafa verið beittir táragasi, gúmmíkúlum og alvöru byssukúlum. Öryggissveitir á vegum hersins hafa um helgina tekið upp enn meiri hörku gegn mótmælendum, sem hafa látið í sér heyra síðan herinn tók völdin í landinu í byrjun febrúar og nokkrir af helstu leiðtogum landsins, þar á meðal Aung San Suu Kyi, sem í raun hefur leitt landið síðustu ár eftir að herinn losaði tök sín, voru hnepptir í varðhald. Mótmælin hafa að mestu leyti verið friðsamleg. Myndbönd og myndir af samfélagsmiðlum sýna mótmælendur reyna að forða sér undan öryggissveitum og lögreglu sem fylgja þeim fast á eftir. Þá sjást sveitirnar reisa vegatálma og leiða einhverja mótmælendur blóðuga í burtu. Horrible images coming out of #Myanmar 🇲🇲 where protesters are experiencing the bloodiest day so far. More than a dozen protesters have been killed by live fire by #Tatmadaw forces pic.twitter.com/rnqhKEqcBJ— Thomas van Linge (@ThomasVLinge) February 28, 2021 Tala látinna mótmælenda er á einhverju reiki, en einhverjir mjanmarskir aðgerðasinnar hafa á samfélagsmiðlum sagt frá því að allt að tuttugu mótmælendur hafi beðið bana í átökum við lögreglu. Í samtali við AFP-fréttastofuna sagði einn mótmælandi að lögregla hefði byrjað að skjóta mótmælendur við fyrstu sýn. „Lögreglan hóf skothríð um leið og við mættum. Við fengum enga viðvörun. Sumir [mótmælendur] særðust og sumir eru enn að fela sig í húsum nágranna sinna,“ sagði mótmælandinn Amy Kyaw.
Mjanmar Tengdar fréttir Blóðugur dagur í Mjanmar Minnst tveir eru látnir eftir að hermenn hófu skothríð á mótmælendur sem voru að mótmæla valdaráni hers Mjanmar. Fregnir herma að tugir hafi særst í skothríðinni sem hófst nærri hafnarsvæði Mandalay, næst stærstu borg ríkisins. 20. febrúar 2021 15:25 Fjölmenn mótmæli í skugga skothríðar Þúsundir mótmælenda gengu um götur borga Mjanmar í morgun, þrátt fyrir að hermenn hafi skotið minnst tvo mótmælendur til bana í gær og sært marga aðra. 21. febrúar 2021 10:54 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Fleiri fréttir Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sjá meira
Blóðugur dagur í Mjanmar Minnst tveir eru látnir eftir að hermenn hófu skothríð á mótmælendur sem voru að mótmæla valdaráni hers Mjanmar. Fregnir herma að tugir hafi særst í skothríðinni sem hófst nærri hafnarsvæði Mandalay, næst stærstu borg ríkisins. 20. febrúar 2021 15:25
Fjölmenn mótmæli í skugga skothríðar Þúsundir mótmælenda gengu um götur borga Mjanmar í morgun, þrátt fyrir að hermenn hafi skotið minnst tvo mótmælendur til bana í gær og sært marga aðra. 21. febrúar 2021 10:54