ÞG verktakar byggja nýtt hús við Alþingi

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis heldur tölu við skóflustungu fyrir …
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis heldur tölu við skóflustungu fyrir nýja viðbyggingu Alþingis Karítas

Skrifstofa Alþingis hefur tekið tilboði ÞG verktaka í þriðja áfanga byggingar skrifstofuhúss á Alþingisreit.

Um er að ræða uppsteypu og fullnaðarfrágang grunnhús auk fimmtu hæðar. Vonir standa til að vinna við aðstöðusköpun, lagfæringu á girðingu, uppsetningu vinnubúða, merkingar og fleira hefjist í næstu viku og eru verklok áætluð í lok apríl 2023,“ segir í tilkynningu frá Skrifstofu Alþingis.

ÞG verktakar buðu lægst í verkið og verður gengið frá samningum á næstu dögum. Hljóðar kostnaðaráætlun verksins upp á 3.340.725.282 m.vsk að lokinni yfirferð hjá Fjársýslu ríkisins. 

Í nýrri byggingu sem rís á milli Kirkjustrætis, Vonarstrætis og Tjarnargötu, þar sem áður voru bílastæði, verða skrifstofur þingmanna, aðstaða fyrir þingflokka og starfsfólk þeirra sem og aðstaða fyrir nefndarstörf. Aðstaða flestra þingflokka og allt nefndarstarf er nú í leiguhúsnæði og leysir nýja byggingin töluvert skrifstofuhúsnæði í Austurstræti af hólmi.

Þá er gert ráð fyrir nýju mötuneyti í nýrri viðbyggingu.

„Framkvæmdasýsla ríkisins hefur umsjón með byggingaframkvæmdunum en arkitektar Studio Granda hlutu fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína í hönnunarsamkeppni sem haldin var árið 2016. Aðilar hönnunarteymis eru Studio Granda og EFLA,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert