Gabríel Douane dæmdur í tveggja ára fangelsi Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 23. mars 2023 15:54 Gabríel við aðalmeðferð málsins í febrúar Vísir Gabríel Douane hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir þátt sinn í Borgarholtsskólamálinu svokallaða og tvær aðrar líkamsárásir. Þrír ungir karlmenn fengu sex mánaða skilorðsbundinn dóm en einn ákærðu var sýknaður.
Dómur var kveðinn upp í héraðsdómi Reykjavíkur rétt í þessu. Fjórir mannanna voru ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en einn þeirra fyrir líkamsárás. Mennirnir voru allir ákærðir fyrir vopnalagabrot en á meðal vopna sem beitt var í árásinni voru hnífar, kylfur, ljósaperur og hamar. Fjórir mannanna eru á tvítugsaldri en einn er rúmlega þrítugur. Sá elsti var sýknaður í málinu. Slagsmálin voru einskonar uppgjör tveggja hópa en þau fóru fram í Borgarholtsskóla þann 13. janúar 2021. Árásin olli miklum óhug í samfélaginu og velti upp spurningum um öryggi innan veggja skóla hér á landi. Þeir sakfelldu voru dæmdir til að greiða hvor öðru miskabætur af stærðargráðunni nokkur hundruð þúsund krónur. Sex þurftu að leita aðstoðar á slysadeild eftir átökin en mikill viðbúnaður lögreglu, sérsveitar og sjúkraflutningamanna var á staðnum. Þá var myndböndum af árásinni dreift á samfélagsmiðlum. Vísir fjallaði ítarlega um það sem fram fór við aðalmeðferð málsins í febrúar þar sem vitnisburði mannanna, vitna, kennara og lögreglumanna var gerð skil. Erfiðlega gekk að fá mörg vitnanna fyrir dóm og þurfti að gera hlé á skýrslutökum á öðrum degi, þar sem vitni voru ekki mætt á tilskildum tíma. Þau höfðu ýmist boðað veikindi eða forföll af öðrum ástæðum. Verjandi eins mannanna tilkynnti dómara að hann teldi ólíklegt að vitnin myndu mæta nema þau yrðu sótt, þar sem þau hefðu mörg hver sætt alvarlegum hótunum. Samhliða aðalmeðferð Borgarholtsskólamálsins voru teknar fyrir tvær ákærur gegn Gabríel Douane. Annars vegar er um að ræða alvarlega líkamsárás gagnvart samfanga sínum og hins vegar árás á fangavörð. Brotin voru framin þegar Gabríel afplánaði dóm á Hólmsheiði vegna annarra brota. Hann var í kjölfarið færður til afplánunar á Litla Hraun. Gabríel var dæmdur til að greiða samfanganum 700 þúsund krónur í miskabætur en sá slasaðist illa á auga við árásina.
Vopnuð árás í Borgarholtsskóla Dómsmál Framhaldsskólar Reykjavík Tengdar fréttir Réðst á samfanga og skallaði fangavörð á Hólmsheiði Gabríel Douane neitaði að svara flestum spurningum saksóknara og dómara varðandi tvær líkamsárásir sem hann er ákærður fyrir innan veggja fangelsisins á Hólmsheiði. Annars vegar er um að ræða alvarlega líkamsárás gagnvart samfanga sínum og hins vegar árás á fangavörð. Eftir að myndbandsupptökur af atvikunum voru spilaðar í dómsal tjáði hann sig lítillega. 26. febrúar 2023 07:01 Svara fyrir vopnaða árás í Borgarholtsskóla sem olli miklum óhug Aðalmeðferð í máli fimm karlmanna sem ákærðir eru fyrir vopnuð slagsmál í Borgarholtsskóla þann 13. janúar 2021 hófst á mánudag og lýkur með málflutningi verjanda á morgun. Vitnaleiðslum lýkur í dag, en sakborningarnir eru allir ákærðir fyrir brot gegn vopnalögum. 22. febrúar 2023 08:00 Gabríel kominn á Hólmsheiði en félagar hans lausir Strokufanginn, sem leitað var síðustu daga og kom í leitirnar í morgun, hefur verið færður í afplánun í fangelsið á Hólmsheiði. Fimm félagar hans sem einnig voru handteknir eru lausir úr haldi lögreglu. 22. apríl 2022 18:13 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Erlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Fleiri fréttir Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Sjá meira
Réðst á samfanga og skallaði fangavörð á Hólmsheiði Gabríel Douane neitaði að svara flestum spurningum saksóknara og dómara varðandi tvær líkamsárásir sem hann er ákærður fyrir innan veggja fangelsisins á Hólmsheiði. Annars vegar er um að ræða alvarlega líkamsárás gagnvart samfanga sínum og hins vegar árás á fangavörð. Eftir að myndbandsupptökur af atvikunum voru spilaðar í dómsal tjáði hann sig lítillega. 26. febrúar 2023 07:01
Svara fyrir vopnaða árás í Borgarholtsskóla sem olli miklum óhug Aðalmeðferð í máli fimm karlmanna sem ákærðir eru fyrir vopnuð slagsmál í Borgarholtsskóla þann 13. janúar 2021 hófst á mánudag og lýkur með málflutningi verjanda á morgun. Vitnaleiðslum lýkur í dag, en sakborningarnir eru allir ákærðir fyrir brot gegn vopnalögum. 22. febrúar 2023 08:00
Gabríel kominn á Hólmsheiði en félagar hans lausir Strokufanginn, sem leitað var síðustu daga og kom í leitirnar í morgun, hefur verið færður í afplánun í fangelsið á Hólmsheiði. Fimm félagar hans sem einnig voru handteknir eru lausir úr haldi lögreglu. 22. apríl 2022 18:13