Valgeir algjörlega í öngum sínum og þjálfarinn vill VAR Sindri Sverrisson skrifar 25. maí 2023 07:31 Valgeir Lunddal Friðriksson reyndi sitt allra besta til að fá dómarann til að hætta við að dæma vítaspyrnu. Skjáskot/Discovery+ Valgeir Lunddal Friðriksson reyndist ákveðinn örlagavaldur, á slæman hátt, þegar lið hans Häcken varð að sætta sig við 1-0 tap gegn Djurgården í Stokkhólmi, í mikilvægum slag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Eina mark leiksins kom eftir vítaspyrnu sem dómarinn ákvað að dæma þar sem hann taldi að boltinn hefði farið í hönd Valgeirs, á 70. mínútu, eftir fyrirgjöf frá vinstri. Valgeir trúði ekki eigin augum þegar hann sá að dómarinn hefði dæmt víti og reyndi ákaft að fá dómarann ofan af því og skilja að boltinn hefði farið í búk hans. Hér að neðan má sjá vítaspyrnudóminn og viðbrögð Valgeirs og félaga hans. Repris på situationen pic.twitter.com/8H5IHIqATQ— discovery+ sport (@dplus_sportSE) May 24, 2023 Eftir leik kallaði þjálfari Valgeirs eftir því að myndbandsdómgæsla (VAR) yrði tekin upp í Svíþjóð, og Valgeir ítrekaði að hann hefði ekki fengið boltann í höndina heldur í maga eða brjóstkassa: „Þetta var ekkert víti. Dómarinn gerði mistök,“ sagði Valgeir. „Fór í brjóstkassann á Valgeiri“ Per-Mathias Høgmo, fyrrverandi landsliðsþjálfari Noregs, er þjálfari Häcken og hann var illur í leiksklok. „Boltinn fór í brjóstkassann á Valgeiri Friðrikssyni. Djurgården hefur spilað tvo heimaleiki, í þeim fyrri var klár rangstaða og svo þetta hérna. Þetta gengur ekki,“ sagði Høgmo við Discovery+. „Það er verið að dæma til að bæta fyrir eitthvað. Eins slæmt og það verður. Ég er hundsvekktur. Þetta er ekki nógu gott. Ég óska Djurgården til hamingju með sigurinn en ég er alls ekki hrifinn af þessu. Dómarinn getur ekki verið viss um þetta,“ sagði Høgmo og fór svo að kalla eftir notkun VAR í Svíþjóð, sem hann sagði hafa heppnast vel í Noregi. „Ég skil að stuðningsmenn vilji halda í tilfinningarnar en í Noregi erum við áfram með mikla pressu og frábæra stemningu. Ég er bara viss um að VAR er eitthvað sem myndi gera okkur öll betri og sjá til þess að minni orka færi í að ræða einhver svona mál,“ sagði Høgmo. Þetta var þriðja tap Häcken í tíu leikjum á tímabilinu og er liðið í 3. sæti deildarinnar með 19 stig, nú sex stigum á eftir toppliði Malmö. Liðið er þremur stigum fyrir ofan Djurgården sem komst upp í 5. sæti.
Sænski boltinn Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Enski boltinn Í beinni: Stjarnan - Grindavík | Ekkert annað en sigur nægir Stjörnunni Körfubolti Fleiri fréttir Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Åge Hareide: Framtíðin er björt „Vorum svo ógeðslega nálægt þessu“ „Hann var alltaf mættur“ Einkunnir Íslands: Albert og Hákon bestir í grátlegu tapi Sjá meira
Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Körfubolti
Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Körfubolti