Baldur: Allt Sauðárkrókssamfélagið þarf bara að halda haus Árni Gísli Magnússon skrifar 10. janúar 2022 21:55 Baldur Þór Ragnarsson var ánægður með sigur sinna manna í kvöld. vísir/bára Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls, var fyrst og fremst ánægður með að lið hans væri aftur farið að spila körfubolta eftir 25 daga frí vegna covid-smita innan liðsins eftir að lið hans hafði sigur á Þór Akureyri, 91-103, í Höllinni á Akureyri í kvöld. Leikurinn var jafn framan af en Stólarnir settu í fluggírinn í fjórða leikhluta og kláruðu leikinn fagmannlega. „
Ánægður með að sigra leikinn. Við vorum í vandræðum með að stoppa þá allan tímann og þeir voru áræðnir að sækja á okkur en við vorum áræðnir á móti og erum að sækja mikið á körfuna og skjótum 34 vítum í leiknum sem þýðir að liðið hafi verið áræðið.” Tindastóll hafði fyrir leikinn í dag ekki spilað leik í 25 daga en þá tapaði liðið heima fyrir Þór Þorlákshöfn með 43 stigum. Hvernig var leikplanið í dag eftir svona langt stopp? „Það var aðallega að hafa gaman að því að spila körfu, af því að þegar þú lendir í þessu stoppi og búið að vera erfitt og svona, þá viltu finna gleðina þannig að það var fókusinn.” „Þú vilt bara spila strax aftur leik eftir svoleiðis frammistöðu. Jólin alveg tóku í að taka þennan leik og svo beint í sóttkví þannig það er bara bjart framundan”, sagði Baldur ennfremur varðandi þetta covid-stopp hjá Tindastóli. Javon Bess endaði með 34 stig og Taiwo Badmus með 30 stig og voru þeir langbestu menn Stólanna í kvöld. „Þetta kom svolítið upp í hendurnar á þeim. Mér fannst Pétur og Sigtryggur gera vel í að hreyfa boltann og við vorum áræðnir en samt svona boltahreyfing og bara gekk vel að brjóta teiginn þeirra þannig það var bara flott að þeir hafi verið að skora.” Thomas Massamba er farinn til síns heima og spilar ekki meira með Tindastóli. Baldur segir að þeir hafi einfaldlega verið að skipta honum út fyrir annan leikmann. En liðið hefur nú þegar samið við króatann Zoran Vrkic sem er 203 cm á hæð og reynslumikill enda orðinn 34 ára gamall. „Við erum búnir að bæta við okkur stærri manni og áfram með lífið”. “Zoran er kominn með leikheimild og verður með í næsta leik. Hann kemur með reynslu inn í þetta, er fæddur 87 og búinn að spila í efstu deild á Spáni, efstu deild í Grikklandi og bara búinn að spila á mörgum stöðum og kann leikinn. Hann er svona ‘stretch fjarki’ þannig hann á að geta opnað gólfið okkar og svo náttúrulega bara stór líkami sem hjálpar líka í þessari deild.” Næsti leikur er strax á föstudaginn við Val en þeim leik var einnig frestað um daginn. Baldur er spenntur fyrir næstu leikjum. „Við þurfum leiki og þótt við hikstum eitthvað eftir að hafa verið í þessum covid veikindum og allt að þá þurfum við að spila og koma okkur í gegnum hindrunina og halda áfram og bara allt Sauðarkrókssamfélagið þarf bara að halda haus, þannig er það bara.
Subway-deild karla Tindastóll Tengdar fréttir Leik lokið: Þór Ak. - Tindastóll 91-103 | Stólarnir kipptu Þórsurum niður á jörðina eftir fyrsta sigurinn Þórsarar unnu loksins sinn fyrsta sigur á tímabilinu í seinustu umferð en þurftu að sætta sig við 12 stiga tap gegn Tindastól í norðurlandsslag í kvöld, 91-103. 10. janúar 2022 22:23 Mest lesið Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Körfubolti „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Handbolti Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Handbolti Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Íslenski boltinn Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð Körfubolti Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Fleiri fréttir Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Martin og félagar skelltu í lás gegn Bæjurum Spilar með bróður sínum og fyrir föður sinn hjá Keflavík „Big Baby“ dæmdur í fangelsi Haltrandi Luka Doncic leiddi Dallas til sigurs og Boston tapaði Beverley í fjögurra leikja bann Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 86-79 | Einvígið á leið í oddaleik Eiginkona Jokic í hjartnæmu myndbandi um þann besta „Á flestum sviðum körfuboltans voru þeir bara betri en við“ „Þetta var bara sturlað“ Martin og Styrmir góðir en liðunum gekk misvel Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Fékk yfirburðarkosningu sem varnarmaður ársins Litli Jordan vill alls ekki vera líkt við Jordan OKC áfram taplaust og Boston byrjar vel Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Aþena upp í Subway-deildina „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 68-67 | Ekki fallegt en það telur Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Þjálfari Luka og Kyrie framlengir „BLE-bræður eru brjálaðir!“ Sjá meira
Leik lokið: Þór Ak. - Tindastóll 91-103 | Stólarnir kipptu Þórsurum niður á jörðina eftir fyrsta sigurinn Þórsarar unnu loksins sinn fyrsta sigur á tímabilinu í seinustu umferð en þurftu að sætta sig við 12 stiga tap gegn Tindastól í norðurlandsslag í kvöld, 91-103. 10. janúar 2022 22:23