Kæru sóttvarnalæknis vísað frá Landsrétti Kjartan Kjartansson og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 7. apríl 2021 18:02 Landsréttur Vísir/Vilhelm Landsréttur vísaði frá kæru sóttvarnalæknis á úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um lögmæti skyldudvalar í sóttkvíarhóteli. Sóttvarnalækni var talinn skorta lögvarða hagsmuni í málinu og tók Landsréttur ekki efnislega afstöðu til lögmætis skyldudvalarinnar.
Héraðdómur úrskurðaði að ekki mætti skylda fólk til dvalar á sóttkvíarhóteli um páskana. Reglugerð um það skorti jafnframt stoð í lögum. Sóttvarnalæknir kærði úrskurðinn til Landsréttar í samráði við heilbrigðisráðuneytið. Frávísunin þýðir að úrskurðurinn um ólögmæti sóttvarnaaðgerðarinnar stendur. Þrír dómarar Landsréttar sem vísuðu kæru sóttvarnalæknis frá sögðu hann skorta lögvarða hagsmuni af því að dómurinn leysti úr kröfunni. Rök þeirra voru þau að heilbrigðisráðuneytið hefði brugðist við úrskurði héraðsdóms með því að leyfa fólki á sóttkvíarhótelinu að yfirgefa það ef það hefði aðstöðu til að ljúka sóttkví annars staðar. Þá hefðu einstaklingarnir sem kærðu skyldudvöl sína á hótelinu þegar fengið neikvætt úr seinni sýnatöku og dvöl þeirra á hótelinu hefði því hvort eð er verið lokið nú. Landsréttur tók því ekki afstöðu til þess hvort að skyldudvöl í sóttvarnahúsi samræmist lögum. Álit dómaranna á kröfu sóttvarnalæknis kom fram í úrskurðum í fjórum málum sem voru nær samhljóða fyrir utan aðstæður hvers og eins kæranda til héraðsdóms. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, sagðist í dag ekki ætla að veita viðbrögð við niðurstöðu Landsréttar. Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður hans, segir að sóttvarnayfirvöld ætli að nýta kvöldið til þess að gaumgæfa frávísunina og finna út næstu skref. Í viðtali á Reykjavík síðdegis á Bylgjunni áður en Landsréttur vísaði kærunni frá í dag sagði Þórólfur að finna yrði úrræði til þess að lágmarka smit sem koma inn í landið innan þess lagaramma sem er til staðar yrði úrskurður héraðsdóms staðfestur. Hann sagðist telja að það veiktu sóttvarnir hér á landi verulega. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi sóttvarnalækni hafa gengið lengra en sóttvarnalög heimiluðu með því að skikka fólk sem sannarlega hafði í hús að vernda hér á landi til að sæta fimm daga sóttkví í til þess gerðu sóttvarnarhúsi. Til þess skorti reglugerð sem heilbrigðisráðuneytið gaf út lagastoð. Þórólfur hefur sagt að hann hafi lagt fram tillögu um að skikka ferðalanga sem koma frá löndum sem eru skilgreind með mikla útbreiðslu kórónuveirusmita í sóttkví á sérstöku sóttkvíarhóteli vegna tilfella þar sem fólk sem átti að vera í sóttkví heima hjá sér eftir komu til landsins hafi rofið sóttkvína. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Fleiri fréttir Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Sjá meira